Heimildarmaður stundaði lækningar á Eyrarbakka. Varð hann var við furðulega atburði eina nótt. Varð hann var við að einhver þungi legðist ofan á hann og gat hann ekkert hreyft sig. Fann hann þá loðinn haus á koddanum fyrir ofan sig en þegar hann horfði sá hann ekkert. Daginn eftir kom miðaldra maður úr Villingaholtshreppi að sækja hann til sjúklings. Sami...
Sels-Móri
Þegar Guðmundur kaupmaður á Eyrarbakka rak þar búskap með versluninni var tjörn ein í landareign hans sem samkvæmt gamalli trú mátti ekki slá. Tjörnin var loðin og lét kaupmaður slá hana. Tvö fyrstu árin missti hann sinn stórgripinn hvort árið. Þriðja árið lét hann slá tjörnina, en þá dó Jónína dóttir hans. Hætti hann þá búskap og sigldi.
Álagablettur hjá Eyrarbakka
Gísli Magnússon á Keraugastöðum á Landi, var sonur hjónanna í Næfurholti. Hann þroskaðist snemma og manna best líkamlega og var með hærri mönnum að vexti. Hann var talinn meðal sterkustu manna í Rangárvallasýslu. Magnús var mikill vinur séra Bjarna Helgasonar á Stóru-Völlum. Eitt sinn var séra Bjarni staddur á Eyrarbakka og veðjaði fé við kaupmann,...
Veðmálaglíman á Eyrarbakka árið 1729
Hraun gengur í sjó fram á Eyrarbakka, en þar sem hraunið þrýtur myndast tangar og víkur á milli þeirra. Kallast víkur þessar holur og er fiskisælt í þeim. Eru þrjár slíkar holur merkastar í Hraunshverfi, Bjarnavörðuhola, Borgarhola og Litla - Hraunshola. Urðu sjómenn oft fyrir því að festa færi sitt á sléttum botni holanna með undarlegum hætti. Hugðu menn...
Ódráttur á færi.
Hartmann Kaupmaður á Eyrarbakka neyðir hafsögumenn sína til þess að fara út í Eyrarbakkaskipið í vonsku veðri. Þeir ná út í kaupskipið, tólf saman en í áhöfn kaupskipsins voru sex manns. Skipið sleit upp um nóttina og brotnaði í spón og drukknuðu allir mennirnir átján. Sömu nótt tók kaupmaðurinn hastarlega flogaveiki sem dró hann til dauða eftir nýárið....
more ...
Hartmann Kaupmaður
Dísa hafði tekið að sér dreng til fósturs og alið hann upp. Hún kenndi honum margt í fornum fræðum. Hann reisti síðan bú á Eyrarbakka þegar hann var fulltíða maður. Einhverju sinni flutti Dísa skreið á hestum út á Eyrarbakka. Þegar hún kemur út undir kaupstaðinn mætir henni fóstursonur hennar og segir: „Hart reiðir þú á, fóstra.“ Hún sagði honum að halda...
Dísa leggur inn skreið
Þegar skipi er ýtt á flot má ekki reyna oftar en tvisvar heldur hætta þá við framsetningu. Sagt er að sé þessi regla brotin sé skipi og sjómenn í mikilli hættu. Þetta gerðist eitt sinn við Eyrarbakka. Þá var ýtt þrisvar út og fórst þá skipið með allri áhöfn.
Sævíti. Ekki oftar en tvisvar.
Það var eitt sumar þegar Eyrarbakkaskip átti að fara þaðan til útlanda var það að skipverjar komu klæðum sínum í þvott hjá konu einni á Bakkanum. Hún þvoði fötin einn góðan veðurdag og breiddi þau út til þerris. Þegar hún ætlaði að taka þau inn um kvöldið voru þau öll horfin. Stokkseyrar-Dísu var kennt um þetta en enginn þorði eftir að ganga.
Jón Jónsson átti sér nokkur viðurnefni og þótti honum góður sopinn. Villtist hann eitt sinn er hann fór að fá sér á pelann.
Datavísur
Á bæ einum á Suðurlandi bjó ríkur maður ásamt konu sinni og dóttur, Ólöfu. Hún var væn og örlát. Einu sinni var hún að leika sér við hól þegar svefn sótti að henni. Hana dreymdi álfkonu koma til hennar og bað hana að gefa sér mjólkina úr kindinni sem hún ætti frá því farið væri að stía og fram að fráfærum. Í næstu sveit bjó vinur föður Ólafar, hann átti...
Ólöf álfabrúður
Jón í Næfurholti fór eitt sinn í lestarferð til Eyrarbakka. Lenti hann þar í útistöðum við mann einn og tókust þeir á og skyldu í illu. Seinna þurfti Jón að fara af bæ og varð þar fyrir ásókn mannsins aftur en núna var hann afturgenginn. Fór Jón svo illa út úr þeirri viðureign að hann dó hálfum mánuði seinna.
more ...
Jón í Næfurholti og draugurinn
Rauðalækjar-Siggi segist hafa séð náskötu og skötusel og séu það hálfgerð skrímsli og óvættir. Hann sagði að margslags ódrættir og skrímsladýr væru til.
Náskata og skötuselur
Guðmundur Gestson var á leið út á Eyrarbakka. Hann kom við á Gamla - Hrauni, og var þá nokkuð við skál, þar sem hann hafði komið við hjá kunningja sínum á Stokkseyri og fengið hressingu. Farið var að skyggja er Guðmundur fór frá Gamla - Hrauni, og sá menn það síðast af honum að hann valdi leiðina með sjónum út á Eyrarbakka. Týndist hann þarna á leiðinni...
Síra Jón var eitt sinn á uppboði á Eyrarbakka og var heitt og þröngt þar inni. Hafði prestur þá orð á að opna þyrfti glugga. Spurði þá einhver hver maðurinn væri. Þá mælti síra Jón: Heyrið þið raust hins gamla, það var Ölfuspresturinn sem talaði. Mikið þótti presti koma til sjálfs síns og var það að verðleikum. Eitt sinn strauk hann um fætur sínar og...
Frá síra Jóni Mattíassyni
Tveir ólíkir menn á mismunandi tíma finna eitthvað þungt koma yfir þá eða falla á þá og þeir líða út af. Kona sagðist einnig hafa séð þennan óvætt í hnoðra eða skýlíki.
Vísur sem Sigurður Guðmundsson á Gamla - Hrauni orti um kaupmenn á Eyrarbakka og Stokkseyri á stríðsárunum, um 1915.
Kaupmannavísur.
Í Hraunshverfi á Eyrarbakka eru þrír blettir sem bannað er að slá eða nytja á annan hátt, en þetta eru hóllinn og dældin fyrir norðan bæinn á Stóra - Hrauni, hóllinn Hraunstekkur og stararflóðið fyrir norðan túnið á Borg. Tók eitt sinn Gísli Gíslason á Hrauni einn stein úr hólnum fyrir norðan Stóra - Hraun. Fótbrotnaði þá hryssa er hann átti og festi...
Eyjólfur frá Litlahrauni í Stokkseyrarhreppi er orðlagður fyrir afl og hreysti og er fyrirtaks glímumaður. Kaupmaðurinn á Eyrarbakka veðjar við skipherra á skipi sínu um að skipherrann gæti ekki fundið þann útlending sem Íslendingar bæru ekki af í hreysti. Sumarið eftir kemur skipherrann til Eyrarbakka með blámann og fékk kaupmaður Eyjólf til þess að...
Eyjólfur á Litlahrauni
Sigfús var mjög góður smiður en drykkfelldur. Hann fékk það verkefni að smíða Strandakirkju. Er hann var að höggva bitana til var hann drukkinn og gerði hann bitana of stutta. Fann presturinn rekið rauðaviðartré sem hægt var að nýta í nýja bita. Auk þess að vera smiður var Sigfús góður hagyrðingur og eru margar vísur til eftir hann.
Frá Sigfúsi snikkara á Eyrarbakka
Einu sinni voru tveir bændur, annar frá Skúmsstöðum en hinn frá Stóru-Háeyri. Þeir áttu sinn áttæringinn hvor sem þeir létu ganga á Eyrarbakka. Um sama leyti lét Dísa teinæring ganga á Stokkseyri. Þegar hún frétti að skipum þeirra gekk betur að fiska en hennar þá brá hún sér um miðja nótt út á Eyrarbakka og tók færin úr báðum skipunum, fór með þau að...
Meinfýsi Dísu