37 datasets found
Place of Narration: Siglufjörður
Sigfús var yngstur af níu börnum Þorvaldar ríka Sigfússonar á Dalabæ í Úlfsdölum. Hann dó 19. september 1866 21. árs að aldri og í kirkjubókum stendur að hann hafi verið „aumingi á Dalabæ.“ Sagt var að Sigfús hafi verið mikill efnismaður og hraustur eins og hann átti kyn til. Þegar hann var á milli fermingar og tvítugs fór hann frá Dalabæ í erindum...
Stúlka að nafni Guðrún sá mág sinn ganga alvotan inn í eldhús þar sem hún var stödd. Reyndist hún vera sú eina sem varð vör við hann. Hafði hann drukknað sama dag um borð á skipi sem fórst.
Jón Rafnson dreymdi að hann fyndi dauðan mann við sjóinn. Drukknaði hann síðan sjálfur.
Sölvi Sæmundsson bjó að Þverá í Ólafsfirði. Þegar Sölvi var orðinn gamall maður átti hann heima á Siglufjarðareyri í kofa sem Sandhóll heitir. Hann var skyggn og forspár, sagði fyrir ýmsa atburði. Sagði meðal annars að Sæmundur sonur sinn mundi deyja á undan sér. Eitt kvöld að haustlægi hafði hann gengið út og kom inn að vörmu spori, var honum mjög...
Árið 1953 dó öldruð kona á elliheimilinu í Skjaldarvík, hún hét Mikkelína Hallsdóttir frá Ísafirði. Árni Jóhannesson lá í rúmi sínu milli svefns og vöku um klukkan 7, fannst honum þá að eitthvað kæmi að honum og sem lögð væri hönd á öxl hans og blásið væri um leið á vanga hans. Hann opnaði augun en sá engan. Næsta morgun frétti hann að Mikkelína hefði...
Svipur Mikkelínu
Konu dreymdi mann sinn kveða vísu (sjá Vísur). Hann fórst.
Þegar menn finna dauða menn skal ekki ganga fram hjá þeim án þess að hlynna nokkuð að þeim því þá leggjast þeir á mann og ásækja. Eitt sinn týndist skip á Siglufirði. Nokkru seinna fór Árni Höskuldsson frá Neðriskútu til næsta bæjar. Þá sá hann eitthvað í fjörunni sem hann taldi vera hákarl. En svo sá hann að þetta var marflóétinn mannslíkami og löfðu...
Veturinn 1797 í janúar sást sjóormur (Serpentem marinum) fyrir framan svo nefnda Dali milli Fljóta og Siglufjarðar og hélt sig alltaf á sama svæði fram til mánaðarloka mars. Sá sem lýsti honum best fyrir Stepháni Thorarinssyni kaupmanni í Siglufirði var J.P. Hemmert og kvað hann orminn oftast halda sig örgrunnt og að kalla upp við landsteina, vera mjög...
Sjóormur
Skipið var smíðað á Spáni úr völdum viði og mjög til þess vandað í alla staði. Hét það upphaflega „Basterella“ og var fyrst í stað látið flytja þræla frá Afríku vestur um haf. Síðan fylgdi því ógæfa. Um aldamótin rakst norskt skip á það mannlaust úti á miðju Atlandshafi. Skipið var dregið til Álasunds og átti að nota það fyrir kolageymslu. En varðmenn...
Draugaskip á Siglufirði
Hálfdán Einarsson lá inni við bryggju á Siglufirði á báti sínum Einari Hálfdáns, nótin hafði rifnað og var tekin til viðgerðar á bryggjunni. Skafti Stefánsson kom hlaupandi niður á bryggju og biður strákana að flýta sér því Hálfdán kæmi inn klukkan 10 næsta morgun með 200 tunnur. Það fór sem Skafti sagði, þegar lokið var við að gera við nótina fór Hálfdán...
Sú fregn barst vestan af Siglufirði að þar hafi komið inn á höfn nokkrar fiskiduggur enskar og frakkneskar, þar lágu fyrir nokkur hákarlaskip.Einn daginn sáu menn að farið var í land frá einni frakknesku duggunni af einum manni á báti. Þegar hann kom á land settist hann niður og klæddi sig úr bússum sínum, lagði síðan af stað upp undir Hafnarbakka og...
Einsetukerlingin Dala-Molda, kemur að máli við verslunarstjóra og segir að hún hafi séð til 12 manna koma í búðina til hans kvöldið áður. Lýsti hún þeim öllum svo nákvæmlega að kom heim og saman við áhöfn hákarlaskips sem farist hafði úti fyrir Langanesi sama kvöldið og hún sá sýnina.
Eitt sinn lá við að Jakobína Jensdóttir Stær ljósmóðir og förunautur hennar slyppu ekki með lífi yfir Hestskarð milli Siglufjarðar og Héðinsfjarðar. Snjó hafði kyngt niður dag eftir dag, en í sama mund og stytti upp lagðist kona á sæng í Héðinsfirði. Varasamt var að fara yfir fjallið vegna snjóflóðahættu en aðra leið var ekki hægt að komast. Tveir bændur...
Ljósmóðirin og snjóflóðið
Kristján vann ásamt bræðrum sínum, Þórði og Sveinbirni á Siglufirði. Um haustið réðu bræður hans sig á lélegt skip sem varla var talið sjófært. Var Kristján hræddur um bræður sína og bjóst eins við að sjá þá aldrei lifandi framar. Tók Þórður loforð um að birtast Kristjáni ef hann drukknaði og vinda úr fötum sínum hjá honum. Um hálfum mánuði síðar vaknaði...
Svipur Þórðar Benediktssonar
Er Jóhann var við símavinnu fótbrotnaði hann og lá á spítalanum á Siglufirði. Kom þá eitt kvöldið inn þar hvítklædd kona sem tók umbúðirnar af fætinum og bar eitthvað á hann og bjó síðan um allt aftur. 5-6 dögum seinna var Jóhann orðinn velfrískur og gat farið aftur að vinna.
Þegar Edvald Möller var verslunarstjóri á Siglufirði var hjá honum unglingsstúlka sem hét Guðrún, dóttir Jóns bónda á Brúnastöðum í Fljótum. Hálfsystir Guðrúnar hét Anna og var gift manni er Þorlákur hét. Bjuggu þau í Fljótum. Einu sinni þegar Guðrún var á Siglufirði var hún ein við matreiðslu í eldhúsi. Sá hún þá Þorlák mág sinn ganga með hægð inn í...
Svipur Þorláks
Einar bjó einnig í Bólu í Blönduhlíð og var kenndur við kotið og kallaður Bólu-Einar. Bóndi sá er þá bjó á Silfrastöðum var mesti kunningi Einars og hafði leitað ýmislegs til hans. Silfrastaðabóndinn var fremur óvinsæll af öðrum einkum vinnumönnum sínum er þótti hann vera vinnuharður og vanþakklátur. Hann átti og illar búsifjar við annan bónda þar í sveit...
Sagnir, er heimildarmaður heyrði í ungdæmi sínu, um að sjóormur hafi sést fram af Úlfsdölum við Siglufjörð ná fram um 1880, eru þær ekki alveg á sömu lund. Þóttust sumir sjá orm með kryppur upp úr baki en aðrir eins og skip á hvolfi, voru fyrirburðirnir mjög settir í samband við Dala-Rafn, sem drukknaði fram af Dölunum, ásamt tveimur uppkomnum sonum 1636....
NÁTTÚRUSÖGUR. Kynjadýr: Sjóormurinn við Úlfsdali
Jón Rafnsson formann, sem drukknaði á Siglufirði er bjarga átti mönnum úr hafróti á höfninni, dreymdi að hann þóttist ganga fram með sjó og finna dauðan mann. Mælti hann þá fram þessa vísu: Hann drukknaði sjálfur og hefur draumurinn líklega verið fyrir því. Hann var einn af þeim ellefu sem grafnir voru í einu.
Kona nokkur lagði af stað frá Siglufirði 19. ágúst 1939 að Hraunum í Fljótum. Hún var ein á ferð og gangandi í sólskini og hita. Þegar hún kom upp að hól er næstur er Skarðsbrekkunni Siglufjarðarmegin, sótti að henni máttleysi mikið svo hún settist niður. Virtist henni þá allt umhverfi taka breytingu og verða sem þakið ísi og snjó. Hún sá rísa upp í...