117 datasets found
Icelandic Keywords: Skrímsli og furðudýr
Fjörulallar og skrímsli
Konur urðu stundum að elta krakka sína því að þau hurfu frá bænum og sást þá til þeirra langt frá. Sagðist barnið vera að elta móður sína en viðkomandi kona var þá ekki þar á ferð. Heimildarmaður veit ekki um sögur af neinum skrímslum.
Kristján tekst á við óvætt á Barðaströnd, menn töldu skepnuna hafa verið otur. Hann var á ferð á hesti að næturlagi, verður allt í einu var við að þar er komið dýr fast að hestinum og hleypur með honum. Hann sá strax að það var ekki hundur þótt dýrið væri svipað að stærð. Hann herðir á en kemst ekki framfyrir og allt í einu tekur dýrið upp stökk og...
SÁM 91/2465 EF
Rætt um bitvarg, stefnivarg, sendingar og fleiri orð sem notuð voru um tófur. Þær gátu verið fylgjur manna og fornmenn dreymdi þær fyrir atburðum. Að skjóta bitvarg með silfurkúlu var gott ráð. Það kallast skoffín þegar tófa og köttur eignast afkvæmi saman. Þetta kom fyrir í tíð heimildarmanns og þá var best að hafa silfurkúlu til að drepa þetta. Þetta...
Skrímslatrú í Arnarfirði; dæmi um hvernig skrímslasaga getur orðið til
SÁM 92/3029 EF
Skrímsli
SÁM 92/2779 EF
Saga um Helgu ömmu á Ormsstöðum og skrímsli úr Ormsstaðavatni. Eitt kvöld heyrðist skruðningur úti og húsbóndi leit út um gluggann. Síðan bannaði hann fólkinu að líta út um gluggann eða fara ofan. Hávaðinn, sem var eins og í skeljum, gekk alla nóttina og um morguninn sá fólk verksummerkin.
SÁM 89/1714 EF
Saga um skrímsli í Flatey á Skjálfanda; Sæmundur afi heimildarmanns átti heima þar og sá skrímsli
SÁM 86/710 EF
Slóð eftir skrímsli; fiskigengd; minkur
SÁM 92/2743 EF
Draugatrú og skrímsli
SÁM 85/502 EF
Hefur heyrt ýmsar sögur úr Arnarfirði, þar lifðu sögur um drauga, skrímsli og annað þvíumlíkt. Segir að gamlir menn hafi talað um þetta, menn sem voru gamlir þegar heimildarmaður var krakki, og sem hann þekkti ekkert. En hann heyrði talað um þetta, bæði fjörulalla og skrímsli. Man ekki eftir neinum sögum um þetta
Skrímsli
SÁM 92/2724 EF
Ljós sást í Krókhúsi í Núpakotstúninu; skrímsli elti stundum menn
SÁM 85/612 EF
Skrímslið í Skorradalsvatni var oft notað til að hræða krakka. Loðsilungur átti að vera í árfarvegi vatnsins. Heimildarmaður var varaður við að veiða þar, en hann varð ekki var við aðra silunga en þá venjulegu.
Skrímsli voru engin í Hvítá né Hestvatni.
SÁM 90/2183 EF
Rætt um skrímsli eða furðudýr í Hestvatni. Elínborg segir frá því að móðir hennar sá þrjár ókennilegar skepnur við vatnið árið 1930; henni fannst þær líkjast báti á hvolfi. Þrír ungir menn sáu dýrin líka, Elínborg hefur rætt við einn þeirra og lýsti hann skrímslunum alveg eins og móðir hennar. Elínborg sá sjálf för eftir skrímslin á bakkanum. Sögur af...
SÁM 93/3806 EF
Heimildarmaður heyrði frá kunningja sínum sögn af því þegar skrímsli sást í fjöru fyrir neðan bæinn sem kunninginn bjó á. Þetta var skepna sem enginn kannaðist við og enginn þorði að nálgast. Daginn eftir fundust ógreinileg spor sem ekki var hægt að greina almennilega en sýndu þó að eitthvað hafi verið á ferðinni þar. Fjörulallar voru á hverju strái á...
Jón Hákonarson segir sögu sem Guðmundur Jónsson sagði honum af svokölluðum nenni, en það áttu að vera gamlir vatnahestar.
SÁM 93/3752 EF
Talar um að það hafi eitthvað verið um drauga á Síðu en ekki mikið. Segir frá því þegar Davíð bóndi í Fagurhlíð í Landbroti hitti óskilgreinda skepnu á leið sinni sem reyndi að hrekja hann ofan í gljúfur. Tók það bóndann heila nótt að komast framhjá þessari skepnu
SÁM 90/2299 EF
Skrímsli í sjó, fjörum og vötnum. Heimildarmaður heyrði talað um fjörulalla en þekkti engan sem hafði séð þetta. Á Dynjandisfjöllum eru vötn og þar eru fiskar.
SÁM 89/1979 EF