117 datasets found
Icelandic Keywords: Skrímsli og furðudýr
Skrímsli á fjöru í Kerlingardal
SÁM 85/441 EF
Skrímsli í fjörum. Vagn Ebenesersson, bóndi á Dynjandi, var úti við og heyrði þá skvamp í sjónum. Þá sá hann ófreskju, en hann var með byssu á sér og miðaði á hana. En ekki gekk úr henni. Þá tók hann silfurhnapp úr peysunni sinni og skaut skrímslið sem hrökk í sjóinn og sást ekki meir. Heimildir að sögunni.
Saga af skrímsli. Hálfdán hafði eitt sinn hitt skrímsli og hann beið þess aldrei bætur. Hann gat aðeins einu sinni sagt frá því. Eitt sinn var heimildarmaður stödd inni í gangi og þar var lítið skot. Þar sá hún mann og kallaði hún upp yfir sig. Sagði maðurinn að hún þyrfti ekki að vera hrædd. Var þetta þá Hálfdán kominn.
SÁM 89/1744 EF
Skrímsli
SÁM 92/3015 EF
Um skrímsli. Skrápur var sagður vera um skepnuna eins og skeljahúð. Heimildarmaður segir þetta hafa verði útigangshross sem hafa leitað skjóls heim að bæjum í vondu veðri.
SÁM 88/1704 EF
Rætt um fiska sem ekki mátti veiða, og sjóskrímsli sem Þórður las um. Kannaðist um eitt skrímsi í vatninu Okanagan, en hefur ekki mikla trú á sannleiksgildi þess.
SÁM 91/2796 EF
Um skrímsli. Séra Ásgeir varð var við eitthvað þegar hann reið fjörurnar. Honum heyrðist eins og það væri eitthvað fyrir aftan sig.
Vættir í Höskuldsey, einnig fjörulallar og skrímsli; atburður 1916
Séra Hallgrímur Pétursson kvað niður ófreskju eða hval uppi í Hvalvatni
SÁM 93/3666 EF
Sögn um Ólaf Jónsson og átti heima í Látrum. Á yngri árum var hann formaður. Eitt sinn voru þeir á sjó og voru búnir að leggja línuna í góðu veðri. Þeir létu bátinn reka. Eftir svolitla stund sáu þeir eitthvað koma upp sem þeir héldu vera bauja. Þeim sýndist þetta vera sverara en bauja og alltaf var sama fjarlægðin á milli þeirra.
Huldufólkssaga eða skrímslissaga frá Ásólfsskála. Kona sér koma mann heim til sín en þegar hún kemur nær þá sést að þetta er ekki maður heldur eitthvað annað. Það er með eðlilega mannsfætur en með helmingi stærri búk en vanalegt er.
SÁM 89/1837 EF
Skrímsli á Mýrdalssandi
SÁM 85/434 EF
Spurt um skrímsli
SÁM 92/2598 EF
Egill Ólafsson segir frá sögnum af skrímslum í Rauðasandshreppi; á Breiðuvík mun hafa sést skrímsli á 18. öld.
SÁM 93/3752 EF
Skrímsli í vötnum. Heimildarmaður heyrði sögur um það en lagði ekki mikinn trúnað á slíkt. Hann sagðist hafa lesið sögur um þetta.
SÁM 89/1978 EF
Um skrímsli í Gufudal, skýring með
SÁM 92/2649 EF
Skrímslatrú var nokkur. Heimildarmaður telur það jafnvel hafa verið aðeins stórir selir.
Munnmælasaga um köttinn sem fór inn Grænkelluhelli og kom út í Vömb, helli í Vatnsársundum austan Heiðardals og sögn um skrímsli sem bjó í hellinum; skjóta átti óvættir með silfri; samtal um söguna
SÁM 85/454 EF
Spurt um skrímsli í vötnum, nykrar og þess háttar fyrirburðir. Hann minnist enn á Jóhann Sölvason og sækýrnar.
SÁM 93/3519 EF
Skrímsli var á ferjustaðnum á Hvítá við Iðu. Menn voru mjög hræddir við það og í nokkurn tíma þorði enginn að fara yfir ána. Vigfús Ásmundsson sá skrímslið á eyri í ánni dálítið fyrir ofan ferjustaðinn. Stundum lá það flatt eins og skata en stundum kom það fyrir að það reisti sig upp. Vigfús var ekki hræddur við þetta.