189 datasets found
Icelandic Keywords: Búskaparhættir og heimilishald
Sagt frá Magnúsi ríka á Bragðavöllum. Björn gerði út menn til að smala fénu hans því að hann taldi að Magnús teldi ekki rétt fram. En vinur Magnúsar vissi af þessu þannig að hann hafði smalað deginum áður og það hafði hann geymt í Skútakletti og hlaðið fyrir. Björn taldi það sem hann fann en hann hafði lítið upp úr því. Magnús var þakklátur Sigurði fyrir...
SÁM 90/2128 EF
Sagt frá Eyjólfi Runólfssyni hreppstjóra á Reynivöllum og fjölskyldu hans; vera foreldra Sverris Kristjánssonar á Reynivöllum; búskap dóttur Eyjólfs og tengdasonar; ekkjubúskap hennar; maður segir fyrir um konu sína
SÁM 92/3065 EF
Naut voru höfð í Hvannadal. Eitt sumar hröpuðu öll nautin í Klukkugil og eftir það lagðist þetta af. Líklega hefur einnig verið gert til kola í dalnum.
Fólk var í fjósi að mjólka og allt í einu fór ein stúlkan að kasta upp. Einn sagði að Rauðpilsa hefði kysst hana en hann sá hana.
Sagt frá gamalli konu trúgjarnri. Hún var vinnukona þar sem heimildarmaður var til húsa. Hún átti 13 börn. Heimildarmanni fannst gaman að ljúga að henni því að hún trúði alltaf því sem að hann sagði. Bera þurfti á bakinu heyið í eyjunum. Konan kunni ekki að slá. Oft var heimildarmaður einn með stúlkunum í heyskapnum. Einu sinni settu stúlkurnar föngin þar...
Saga af Sigurði á Kálfafelli. Hann fékk að slá engi hjá séra Þorsteini.
SÁM 88/1629 EF
Margrét ríka bjó á Eiðum. Hún tróðst undir í sauðarétt sem var fyrir ofan garð á Eiðum.
Draugasögur voru sagðar og sumir þóttust sjá einhverja móra m.a. í heygörðunum.
Sagt frá Jóni Bárðarsyni í Drangshlíðardal: ferðalag frá Reykjavík austur undir Eyjafjöll; atgervi Jóns og verklagni; búskapur í Drangshlíðardal; sjóróðrar með Jóni og æviferill hans
Af Steini afa, búskap hans og formennsku. Hann var orðinn blindur á efri árum en starfaði þó mikið. Steini var alltaf kallaður Gamli Steinn til aðgreiningar frá Steini Jónssyni sem ólst upp á Gerði. Steinn var góður búmaður og vildi alltaf sjá sig birgan í búi með mat. Hann vildi einnig alltaf sjá sig vel byrgan af heyi. Steinn var talinn góður í nábúð,...
SÁM 85/244 EF
Sporðsfeðgabylurinn árið 1872. Þá varð maður úti ásamt 15 ára gömlum syni sínum ásamt kindum. Ágætisveður var í fyrstu framan af degi en fóstri heimildarmanns skipaði heimildarmanni skyndilega að fara með sér og ná í kindurnar. Flýtti fóstri sér mikið en þegar þeir eru komnir heim í fjárhúsin skellur á vonskuveður. Á næstu bæjum áttuðu menn sig yfirleitt...
Heimildarmaður telur að brekkan yfir Álfadalnum gæti hafa verið álagablettur þar sem hún var aldrei slegin. Þar óx gras sem að heimilisfólkið kallaði sólskinskvíu en það er umfælnisgras og sama gras óx í brekku austan í hólnum og hún var ekki heldur slegin. Heimildarmaður telur að grasið hafi ekki verið gott sem skepnufóður.
Saga af Agli á Hnjóti, hann keypti jeppa og flutti mjólkina en verður að hætta því vegna mótmæla bændanna; kaupir síðan sláttuvél og bændur spá í hvort eigi að hætta að taka við mjólk hjá honum vegna bensínbragðs
SÁM 02/4008 EF
Sæmilegt veður var um hávetur, Jón bóndi í Sporði renndi fénu út. Sonur hans var með honum. Þegar hann var búinn að sópa garðana þá sá hann að leiðindahríð var komin. Hann fór að leita að kindunum en villtist og varð úti. Hann fannst ekki fyrr en um vorið. Samtal um söguna og atburðinn.
Búskapur Breiðfirðinga. Allt þar var nytjað, dúnninn og sjórinn var vel nytjaður því fiskur var út um allt. Aðallega steinbítur og þorskur
Kona nokkur lagði það á að enginn mátti búa lengur en tíu ár á Litla-Sandi skaðlaust. Helgi sálugi bjó þar í tólf ár og seinasta árið missti hann beljur úr fjósinu og meri sem komst ekki frá folaldi og sextán ær í kvíum.
Um Stein Þórðarson á Breiðabólstað. Hann var frásagnarglaður. Einu sinni sagði hann frá því að sig hafi vantað gelda á um haustið. Eftir sláturtíð var hann vanur að taka sér ferð að Kálfafelli til tengdaföður síns til að taka af krofunum í eldhúsinu hjá honum. Þá kom í ljós að þar var kjöt af ánni sem Stein vantaði
SÁM 88/1600 EF
Kýrnar á Bíldsfelli voru alltaf reknar á vorin norður með Sogi. Boli var með kúnum en eitt kvöldið vantaði hann. Leitað var út um allt en hann fannst hvergi. Árið eftir voru kýrnar reknar þarna aftur og bættist þá bolinn í hópinn. Hann hafði stækkað og var talið að hann hefði verið hjá huldufólki.
Innan við Merki á Jökuldal er mikið gil sem erfitt er að komast yfir nema á einum stað ef áin er ekki vatnsmikil. En fyrir neðan gilið er ágætis vað. Gilið nefnist Tregagil og áin Tregagilsá. Dregur það nafn sitt af því að eitt sinn var kona úti við heyvinnu og hafði hjá sér barn sitt í vöggu. Kom þá örn og steypti sér niður og tók barnið. Móðirin hljóp á...
Álfur og valva bjuggu í Einholti. Dag einn fóru þau út að slá túnið sem var nokkuð stórt og varð það að gerast á einum degi. Álfur sló og valvan rakaði á eftir. Valvan sprakk af mæði og var heygð þar sem völvuleiðið er en Álfur sprakk í Álfadalnum. Heimildir að sögunni.