Hólar í Norður-Botni í Tálknafirði. Þar mátti ekki slá. Þarna voru tveir hólar og talið var að skepnur myndi misfarast ef þarna yrði slegið. Eitt sinn var það slegið en ekkert kom fyrir.
SÁM 89/1825 EF
Sagt er að kona ein hafi verið eitt sinn skilin ein eftir heima því að hún var nýbúin að eignast barn. Þegar fólkið kom heim var konan horfin en rekja mátti blóðslóð niður að fossinum. Var talið að óvættur í fossinum hafi tekið hana.
SÁM 85/266C EF
Jón Matthíasson var ásamt fleirum að taka upp mó. Þá fór annaðhvort Hekla eða Katla að gjósa og taldi Jón þá vera kominn heimsendi. Hann rak alla frá verki en Þóra dóttir hans fór rólega og þá sparkaði hann í hana og sagði henni að flýta sér.
SÁM 89/2063 EF
Sagt frá tveimur atburðum sem gerðust á kóngsbænadag 1898: Stefán bóndi á Sléttaleiti flutti að Skaftafelli í Öræfum og fiskur sóttur í enskan togara
SÁM 92/3077 EF
Saga af Sigurði. Hann gekk í öfugri buxnaskálminni til að vekja fólkið á bænum. Fólkið fór að hlæja þegar það sá þetta athæfi og þannig vöknuðu allir.
Hnupl og sjálfsbjargarviðleitni. Það var ekki mikið um að fólk væri að stela venjulega en á kreppuárunum voru menn neyddir til þess. Það var ekkert um innbrot, slíkt þekktist ekki. Hinsvegar skiluðu menn ekki öllu og sumir fölsuðu reikninga. Maður stal rúgbrauði í bakaríi og hann fékk viku vist í fangelsi. Í kjölfar þess fékk hann nóg að borða og...
SÁM 90/2144 EF
Sagt frá Sigrúnu Jóhannesdóttur í Höfða í Höfðahverfi og foreldrum hennar og Gests Jóhannessonar á Ytra-Hóli: móðir þeirra sækir eld; faðir þeirra var síðast maður á vergangi í Fnjóskadal
Saga af því þegar Jón bóndi á Hervararstöðum ætlaði að grafa brunn
SÁM 88/1400 EF
Annir í Hergilsey
SÁM 92/2756 EF
Eitt sinn var heimildarmaður á ferð frá Reyðarfirði með vagn og hund sinn er Hákur hét. Þá sá hann á eina sem var laus úr ullinni. Hann var fljótur að grípa kindina og ullin var tekin af henni.
SÁM 85/278 EF
Maður einn kom með á til séra Stefáns í Vatnsfirði. Sagðist hann hafa látið ána í litla telpuhúsið og lambið upp við skúffuna. Átti hann þá við kamarinn.
SÁM 86/800 EF
Álagablettur í Hömrum. þar var blettur sem að ekki mátti slá. Heimildarmaður veit ekki um álagabletti í Hólabrekku.
SÁM 89/1821 EF
Kristján segir frá heyskap og flutningi heys á hestum; systurnar segja frá því að þær hafi borið Guðmund yngsta bróður sinn með í heyskap þar sem þær höfðu heyrt sögu um umskipting; Guðmundur var óskírður og því þorðu þær ekki að skilja hann eftir einan heima af ótta við að hann yrði numinn brott af álfum; systkinin segja frá hvernig mjólk var kæld og...
SÁM 05/4062 EF
Afi heimildarmanns var síðasti bóndi í Traustsholtshólma. Það hafði verið búið þar áður. Heimildarmaður var búinn að gefa Gísla upp heimildir og sagnir í bók um afa sinn. Í hólmanum var hár höfði og ekki mátti slá hann. Erfitt var að komast í hólminn en féð var haft í landi í Hólmaseli. Alltaf þurfti að fara yfir ána. Túnið gaf af sér 100 hesta. Afi...
SÁM 89/2057 EF
Sel í Hólahólum. Seljatóftir, Selbrekkur og Seljahraun sýna hvar selin voru.
Eyjólfur var mikill reikningsmaður í huganum. Það þótti alveg með einsdæmum. Sveinn var bróðir hans en hann var líka sómamaður. Eyjólfur hirti um skepnur á vetrum. Hann gat svarað öllum reikningsdæmum.
SÁM 88/1507 EF
Um búskap á Jökuldalsheiðinni. Mikil harðindi voru á heiðinni. Bændur ráku fé sitt niður í Jökuldal á vorin. Verslun sóttu þeir á Vopnafjörð.
SÁM 90/2117 EF
Kálfur fór inn í Borgarvíkurhelli og kom út í Baulugili. Baulugil heitir svo vegna þess að kálfurinn baulaði þegar hann kom út. Tekinn var mór þarna hjá hellinum og voru börnin vöruð við því að fara inn í hellinn. Þau gerðu það samt og fannst heimildarmanni litlar líkur á því að kálfurinn hafi komist þetta. En greinilegt var að hellirinn hafði verið...
SÁM 89/1805 EF
Heimildarmaður segir frá Helga borgara og góðum smiðum í Skaftafellssýslu, þar á meðal Sveini Ólafssyni og Einari Ólafs syni hans sem var úrvalssmiður. Segir frá búskaparháttum í Þykkvabæ hjá Helga borgara og framsýni hans. Segir einnig frá fjárrekstri í sambandi við verslun, bæði hjá Helga og öðrum mönnum. Lýsir fjárbúskap í Skaftafellssýslu í byrjun 20....
SÁM 90/2309 EF
Heimildarmaður og Arnfinnur Antoníusson voru eitt sinn á ferð á Oddsdal þar sem þeir voru við heyskap. Varð Arnfinnur var við draug sem að gekk með þeim áleiðis en heimildarmaður varð ekki var við neitt. Margir urðu varir við slæðing á þessu svæði.
SÁM 86/852 EF
