Sagnir af fólki í Jökuldalsheiðinni. Árfeðrið réði algjörlega því hvað margir bjuggu á Jökulsdalsheiði. Þegar vel áraði leitaði fólk í aukið landssvæði upp til heiða. Magnús Jónsson á Rangalóni. Nauðsynlegt var að það væri búið í Rangalóni vegna póstferðanna. Veittur var styrkur til búskapar þar. Magnús var síðasti ábúandinn á bænum. Búið var í...
SÁM 90/2116 EF
Sagt frá frostavetrinum mikla 1917-1918 og kalsumrinu á eftir: smíði skíða á Nesi í Fnjóskadal; sjúkraflutningar; lítilsháttar um Fjalla-Bensa; túnasláttur á Víðivöllum; engjaheyskapur og búskapur á Flateyjarheiði
Sögur Elínar ömmu. Hún kunni sögur að ýmsum mönnum, m.a. sögur af séra Búa á Prestbakka og Helga fróða, bróður Búa. Helgi fróði var vel að sér í Biblíunni. Hann var umrenningur og ferðaðist. Eitt sinn var Helgi á ferð og baðst gistingar á Vífilsstöðum, bóndi sagði það velkomið ef hann hjálpaði sér við að taka saman heyið. En ekki vildi Helgi gera það svo...
SÁM 88/1704 EF
Ófeigur gamli var ríkur og mikill búmaður. Eitt sinn var hart vor og ætlaði þá faðir hans að fara að skera eina 20 sauði. Ófeigur fann gras og hann fór með sauðina þangað þannig að það þurfti ekki að skera sauðina. Hann átti ekki margar jarðir. Hann átti mikið af heyjum. Hann átti 9 dætur og 2 syni. Sonur hans var bláfátækur og mikill drykkjumaður....
SÁM 90/2184 EF
Spurt um álagabletti. Heimildarmaður heyrði lítið talað um álagabletti. En hún segir að betra hafi verið að slá í bleytu á söndum. Allt var slegið sem að hægt var að slá.
SÁM 89/1774 EF
Heima hjá foreldrum heimildarmanns voru ærnar látnar vera úti um sauðburðinn. Eitt sinn fór heimildarmaður og bóðir hans að gá að kindunum sem voru að bera. Ein rollan, Jónsmóra, var ill þegar hún var að bera, þeir sáu að hún var borin og átti falleg lömb. Pabbi heimildarmanns fór að gá en þá var ekkert lamb hjá henni og Móra jarmaði ekkert eftir því. Um...
SÁM 86/855 EF
Dalli var sendur séra Gísla í Sauðlauksdal og fylgdi ættinni. Hann kom á undan þessu fólki. Hann var talinn gera börn Gísla að vitleysingum nema séra Magnús. Eitt sinn var heimildarmaður ásamt fleirum að setja kindur út úr rétt þá tók sá sem rak á eftir því að eitt lambið stóð á afturlöppunum og hoppaði um. þegar að var gáð var lambið dautt og þegar búið...
Einkennilegir menn: Þorkell Jónsson á Fljótsbakka og Einar Hinriksson bróðir Steindórs pósts. Einar var röskleika maður. Hann kunni mikið af vísum. Gerð var einu sinni vísa um Einar. Þorkell spáði fyrir veðurfari og var gerð um hann þessi vísa: Spámaður er hann það vil ég nú vona. Þorkell fór um og var að finna svörð til mótekju fyrir menn. Hann þótti...
SÁM 90/2087 EF
Ólafía, móðir Egils á Hnjóti, yfirsetukona í Rauðasandshreppi og frásagnir hennar um lífshætti og afkomu; heyskapur í Skor; ljósmóðurstarf Ólafíu mannhættulegt stundum, heimildir um þetta. Egill á Hnjóti í Örlygshöfn.
SÁM 93/3521 EF
Afi heimildarmanns bjó í Skógarnesi og þangað leituðu margir. Hann var athafnamaður mikill bæði til sjós og lands. Hafði margt fólk í heimili. Átti mörg börn og var með fullt hús af gamalmennum. Þarna komu margir förumenn að. Hann bjó fyrst á Arnastapa og komu margir sem hann kynntist í heimsókn í Skógarnes þegar hann flutti þangað.
SÁM 88/1552 EF
Gamansöm kosningasaga um Gísla á Bíldudal frambjóðanda. Hann fór nokkuð víða og var einn á ferð. Fyrir kosningar ferðaðist hann um til að ræða við fólk. Hann sá framundan sér kotbæ lítinn og fór þangað heim. Þar hitti hann bónda og tók tal við hann. Gísli sá að þar var líklega fátækt. Gísli ræddi kosningar við bónda, en hann tók lítt á öllu og sýndi ekki...
Saga af Valdimar Jónssyni, föður Hannibals. Hann var fjárhirðir í Hnífsdal og varð heylaus í janúar. Hann varð að kaupa korn og var í vandræðum með kindurnar sínar.
SÁM 88/1569 EF
Um kjör fátæks drengs á Jökuldal
SÁM 92/3039 EF
Dóttir heimildarmanns sá eitt sinn huldufólk. Hún var að fara með kaffi til fólksins sem stóð við heyvinnu. Var hún með bréf í spotta á eftir sér og allt í einu er því hent fram fyrir hana og hún heyrir að það er hlegið. Sér hún þá strák í samfesting stökkva burt frá henni. Þegar hann kom inn að klöppinni sá hún hann hverfa þar inn. Um leið og hann fór...
SÁM 86/832 EF
Fjárrekstur. Menn ráku saman fjárreksturinn á Patreksfjörð. Tengdamóðir heimildarmanns gat ekki sofið á meðan því að togararnir lágu fyrir utan landsteinana og enginn karlmaður var á heimilinu. Hún var mjög hrædd við að þeir kæmu í land. Margar konur prjónuðu vettlinga og seldu síðan Frökkum þetta þegar þeir lágu í Patreksfirði.
SÁM 90/2143 EF
1899 var mikil fönn og urðu bændur víða heylausir. Jón Skúlason á Söndum gat hjálpað fólki með hey og hélt hann uppi heilu héraði.
SÁM 89/1777 EF
Eitt sinn var verið að fara með naut inn í Hestfjörð. Einn maðurinn sem fór með hét Sveinn og var vinnumaður séra Sigurðar í Vigur. Ólafur var þar staddur og spyr hann Sigurð að því hvort að öll nautin eigi að verða eftir í Hestfirði. Sigurður svarar því til að líklega muni Sveinn koma aftur.
SÁM 86/862 EF
Ólafur í Látrum, örlæti hans og greiðasemi. Hann var höfðingji mikill, stórlyndur og sterkur. Hann átti fjölda barna og ól upp fleiri. Eitt sinn var ekkja heylaus og tók hann af henni kúna og fóðraði hana yfir veturinn. Hann tók börnin líka og hafði þau hjá sér um veturinn. Hann skilaði henni smjörinu. Ein hjón misstu kúna sína og gaf hann þeim snemmbæru....
SÁM 89/2023 EF
Tveir smala lentu í bardaga og unnu hvor á öðrum og voru heygðir í dys nálægt Fífuhvammi. Maður kom frá Reykjavík og vildi fá að gá í dysina en þau voru frekar á móti því.
SÁM 89/1727 EF
Bjarndýr lá á fjöllum í Hælavík um sumarið. Guðmundur bóndi var hræddur við bjarndýr að hann las allar sínar bænir. Um morguntíma fór hann með Sigurfljóð að smala. Hún sótti kindurnar í laut og þá stóð bjarndýrið upp úr annarri laut. Hún stansaði og fylgdist með dýrinu en maður hennar var horfinn.
SÁM 88/1635 EF
