Einu sinni kom maður að tilbera þar sem hann var að sjúga kýr í haga. Maðurinn var vel ríðandi og elti hann tilberann og náði honum, því helzt næst tilberinn þegar hann hefur sogið sig fullan. Tilberinn bað manninn að láta sig lausan. Maðurinn segir að hann verði þá nokkuð til að vinna. Tilberinn játti því. Maðurinn segir að hann verði að tína saman öll...
Þessa vísu kvaðst bóndi nokkur hafa heyrt kveðna, þegar hann átti leið að illræmdri dýjamýri á Tvídægru nyrðra. Sneiddi hann hjá mýrinni og kvaðst þar aldrei myndi fara ótilneyddur, svo mikill stuggur stóð honum af vísunni.
Maður reið norður í Húnaþing þar sem hann ætlaði að vera í kaupavinnu um sumarið. Áði hann á Tvídægru, fékk sér bita af nestinu og lagðist til svefns undir stórum steini. Dreymdi hann að maður kæmi til hans og segði honum að eiga þar sem væri undir steininum. Fann hann þegar hann vaknaði holu við steininn og í henni var fornlegt sverð. Var ryð utan á því...
Sæmundur hét maður fyrir norðan. Hann var góður smiður og var það vandi hans á útmánuðum að fara suður yfir heiðar og selja smíðar sínar um Borgarfjörð. Sæmundur var röskur og rammur að afli. Einu sinni seldist honum vel svo hann hafði mikla peninga með sér og gekk hann norður Tvídægru snemma á einmánuði. Þegar hann var kominn norðar en á miðja heiði og...
Bóndi nokkur í Húnavatnssýslu þótti undarlegur í háttum. Hann hvarf stundum að heiman svo dögum skipti. Sonur hans ákvað að komast að því hvert faðir hans færi. Eina nóttina fór bóndi út í haga og tók reiðhest sinn og þeysti í átt til Tvídægru. Bóndasonur tók sér einnig hest og fylgdi á eftir föður sínum fram á heiðina. Þeir héldu svo ferð sinni langt...
Einu sinni bjó prestur á Miklabæ nyrðra er hét Pétur. Hann átti dóttur að nafni Helga. Piltur var þar á heimilinu sem hét Sigurður og var hann 17 ára. Helga var vön að fara út á kvöldin til að gá að þvottinum. Eitt kvöldið komu til hennar tveir menn og spurði annar þeirra hvernig hún tæki því ef hann beiddi hennar handa syni sínum. Þeir gáfu henni...
Sagan af Helgu frá Miklabæ
Vestfirðingar og Sunnlendingar hafa jafnan álitið Norðlendinga dugandismenn og úrræðagóða, en þó jafnframt gortara og oflátunga. 1) Tólf menn frá Hólum ætluðu suður á land til sjóróðra, en fengu moldöskubyl á Tvídægru svo þeir urðu allir úti nema einn. Hann komst hálfdauður til næsta bæjar. Bóndinn á bændum, sem Hólamenn höfðu árinu áður hætt og misboðið...