Organizations
Keywords

There are no Keywords that match this search

Danish Keywords

There are no Danish Keywords that match this search

Dutch Keywords

There are no Dutch Keywords that match this search

German Keywords

There are no German Keywords that match this search

Icelandic Keywords
Place Mentioned

There are no Place Mentioned that match this search

Place of Narration
Show More Place of Narration
Narrator Gender

There are no Narrator Gender that match this search

close
11 results
Icelandic Keywords: villur
Níels Havsteen Jakobsson kaupmaður á Hofsósi hélt á móti öllum draugasögum nema þeim er sagðar voru af Eiríki góða. Var það vegna þess að hann taldi Eirík hafa eitt sinn villt um fyrir sér í logndrífu milli Bæjar á Höfðaströnd og Hofsóss. Sá hann þá ætíð mann á undan sér í drífunni, og svaraði maðurinn engu þótt að Níels kallaði til hans. Þegar komið var...
Á Pálmholtsásum er mikill reimleiki og er það að kenna strák sem kom frá Ytrabakka og ætlaði suður en villtist í hríð og varð þarna úti. Honum er lýst svo að hann haldi á selspart undir annarri hendinni sem hann veifar að þeim sem hann vill hvekkja. Einu sinni var Jón vinnumaður á Skriðulandi að fara niður á Syðrabakka til róðrar þegar hann sá stráksa...
Draugurinn með selspartinn
Margrét hét stúlka sem var ein á ferð um vetur á Kirkjumelunum í Meðallandi eða í nánd við það. Var hún með prjóna sina eins og algengt var hjá konum. Veður var milt þennan dag, en mikil þoka. Ekki spurðist til Margrétar lifandi framar; varð hún úti, en enginn vissi hvar. Þetta slys sem og önnur, var kennt loðna manninum á Skarði. En ekki virðist Margrét...
Jónas á Hrafnagili var á ferð um vetrartíma. Þegar hann var kominn að Stórhólsleiti villtist hann af leið og snarstansaði hestur hans við bakka Eyjafjarðarár. Var líkt og að hesturinn hefði verið teymdur af leið.
20. Reimleikar á Espihóli: Villt um fyrir hesti séra Jónasar
Gísli Ásmundsson var fjármaður í Húsey í Vallhólmi. Fór hann eitt sinn að heimsækja son sinn sem bjó í Djúpadal í Blönduhlíð. Á leiðinni til baka sá hann alltaf mann ganga skammt frá sér en sama hvað Gísli reyndi að hraða för sinni þá náði hann aldrei manninum. Kallaði hann til hans atyrðum og þá hvarf maðurinn og eldglæringar féllu yfir Gísla. Þegar...
Tveir menn villtust eitt sinn og hröpuðu til bana í Sperðlagili. Hafa þeir síðan heyrst æpa í gilinu á undan vondum veðrum. Stúlka ein var eitt sinn stödd upp á Seljadal. Heyrði hún ámátleg hljóð og hljóp hún heim. Sagði hún föður sínum frá þessu og skildi hann hvað í vændum mundi vera. Brá hann því við og smalaði fé sínu. Um nóttina gekk í stórhríð og...
Maður er nefndur Flóvent Jósefsson, ættaður úr Eyjafirði. Hann giftist stúlku úr Húnavatnssýslu sem hét Elísabet. Eitt sinn var Flóvent á ferð vestra og lenti þá í kolsvörtum hríðarbyl. Hann villtist og ráfaði lengi villtur og vissi ekkert hvert leiðin lá. Tók hann þá að kalla. Var þá dimmt af nótt, er hann varð þess var, að maður var skammt frá honum og...
Sagnir Árna Jóhannessonar: XVII. „Flýttu þér, flýttu þér, Flóvent!“
Gönguskarð heitir fjallvegur á milli Fnjóskadals og Köldukinnar. Kona að nafni Sigríður og unglingspiltur fóru yfir skarðið í dimmviðri og urðu þau úti. Fundust þau undir stórum steini sem síðan hefur verið kallaður Siggusteinn. Eftir þetta hætti mönnum meir en áður að villast á Gönguskarði. Drengur einn villtist á heiðinni og sama hvað hann gekk þá þá...
Margar skráveifur gerðu Hornstrendingar séra Vigfúsi og sótti hann loks um annað brauð var honum síðar veitt Einholt í Hornafirði 1775 og hélt hann það kall til 1787. Sendu Hornstrendingar honum hverja sendinguna af annarri, tóku þau hjón við þeim og vísuðu til baka eða sáu fyrir þeim. Einn vetur fór prestur suður á land. Hann kom að Hnappavöllum í Öræfum...
Talið er að fyrir löngu hafi verið mjög þéttbýlt í Heydal í Mjóafirði við Ísafjarðardjúp. Í fyrndinni bjuggu þar tólf bændur og auk þeirra einn prestur. Hann sat á Kirkjubóli. Síðasti prestur þeirra var grimmur og skorti andagift svo bændurnir sóttu heldur kirkju til Vatnsfjarðar. Eitt sinn á aðfangadag jóla héldu bændurnir til aftansöngs að...
Einu sinni fór maður einn af Norðurlandi til róðra suður á land ásamt fleirum öðrum. Maður þessi hét Jón og var heldur lítilmenni, en góðsamur og meinlaus. Þegar þeir félagar komu suður á fjöll skall á þá blindhríð. Varð Jón fljótt viðskila við samferðamenn sína og villtist svo hann vissi ei hvar hann fór. Kom hann loks eftir langa mæðu og mikið stríð í...
20