Atvik er gerðist á gamlársdag á heimili Sigurðar og Ingibjargar á Barkarstöðum. Dóttir þeirra ætlaði að baka lummur á gamlársdag og var komin með mjöl í skál. Hún lét hana á búrhilluna og þurfti svo að skreppa fram í baðstofu, en þegar hún kom aftur var skálin horfin. Næsta gamlársdag þegar hún kom fram í búrið, þá stóð týnda skálin þar með mjölinu....
Huldufólk var á Fossi á Barðaströnd, en þar átti m.a. að hverfa barnabuxur sem var verið að þurrka.
Gullprjónn hverfur en finnst aftur að ári á venjulegum stað
Huldufólk; álfabyggð; hlutir hverfa
Huldufólkssaga sem á að hafa gerst í Túni, höfuðkambur týndist
Kona týnir hlutum á dularfullan hátt
Um huldufólk í Grímsey; huldumaður læknar mennska konu; hlutir hverfa
Rétt fyrir jólin gerði stórhríð. Faðir heimildarmanns átti þrjú hross. Þegar hann rak hrossin suður undir hólinn fóru þau á kaf í snjóinn. Hann sá glitta í eitthvað í förunum og stakk því í vasa sinn. Hann sagði konu sinni frá því sem hann fann og tók hún það upp úr vasanum og þurrkaði vel. Þetta var gullkapsel og setti hún það inn í stofu og lokaði...
Fósturmóðir heimildarmanns var eitt sinn að sjóða slátur á útihlóðum og las hún í bók á meðan. Hún lagði bókina aðeins frá sér og þegar hún ætlaði að taka hana aftur var hún horfin. Seinna fannst bókin óskemmd á sama stað og hún hafði lagt hana frá sér.
Heimildarmaður hefur orðið fyrir því að hlutir hverfa og koma aftur.
Ketill segir sögu af álfkonu, sem hann hefur eftir ömmusystur sinni
Huldufólki var kennt um ef hlutir hurfu, nokkrar sögur um það
Jón gamli Húnvetningur Samsonarson og Hjörtur hreppstjóri voru kunningjar og skiptust oft á skoðunum um eitt og annað, þar á meðal um huldufólkstrú. Jón var mjög trúaður á slíkt en Hjörtur ekki. Heyrði sagnakonan það haft eftir Jóni, að ef einhver hlutur týndist, þá hvatti hann fólk til þess að vera ekkert að leita, hluturinn myndi skila sér, álfarnir...