Trúgjarnir menn voru margir. Sumum var hægt að segja allt og þeir trúðu því.
Sagt frá því hvernig mönnum hefnist fyrir illgjörðir
Trú bundin eldingu og eldi
Að biðja guð að hjálpa sér þegar maður fór að hnerra
Rætt um ýmis atriði er varða trú manna á landið
Að auka næmi. Smyr gagnaugu þín með rjúpugalli geymdu í viku. Að ná þeim steini sem gerir mann vitran gnóttum áður en skeður. Vetrardaginn fyrsta slátrar þú einum sauð að húsabaki. Munu þá koma hrafnar og vilja fá bita. Þú skalt ginna krumma með mörgum bitum en treina einum þeirra sem helst gefur sig eftir bitunum. Vetrardaginn síðasta kemur hann með...
Spurt um sitthvað í sambandi við þjóðtrú
Hjátrú í æsku heimildarmanns
Maður fann gamla ryðgaða skeifu á leið sinni milli bæja. Hann hirti hana og fægði vandlega og festi hana síðar upp yfir arninum í stofu sinni í Reykjavík. Eftir það brá svo við að allt fór að ganga vel hjá honum, en áður hafði margt farið úrskeiðis og hann orðið fyrir ýmsum óhöppum.
Trú manna á yfirnáttúrlegar verur
Það var happamerki að negla gamla skeifu fyrir ofan dyr.