Þorsteinn var frá Húsafelli. Hann var skemmtilegur maður og góður veiðimaður. Hann fór ekki í skóla en hafði alla hæfileika til þess. Vísa eftir Þorstein Jakobsson: Þá ég lá í gjáar gljá. Þorsteinn var í skólanum á Hvítárbakka og þar var mikið ort. Bergþór gerði vísu um Þorstein; Þorsteinn hreða er hugaður. Þorsteinn hrósaði sér af tvennu og það var hvað...
Sagt frá kvennaliði í handboltanum sem byrjaði 1940, talað um konur sem voru í liðinu; þær voru líka allar í leikfimi; styttri leiktími hjá konunum; einnig rætt um að fólk tók þátt eingöngu vegna þess að það vantaði í liði; saga af því þegar verkamenn voru ráðnir til að hlaupa í víðavangshlaupi ÍR
Frásögn af Jónasi frá Hriflu og heitum lindum í Reykjanesi. Þarna var hlaðin upp sundlaug og árið 1900 lærði heimildarmaður þarna sund. Jónas kom þarna og beið eftir skipi á meðan hann beið eftir því að komast erlendis í nám.