Átján skólapiltar frá Hólum lögðust út og náðust í Gálgagili; heyrði talað um Fjalla-Eyvind og Höllu og Arnes
Arnes lagðist út í Akrafjalli, þegar farið var að leita hans slóst hann í hóp leitarmanna og fannst aldrei
Arnes átti að hafa verið um tíma á Akrafjalli; annars engar sögur nema þær sem hafa verið skráðar
Um útilegumenn og útilegumannatrú; leit að útilegumönnum við Dyngjufjöll og vísa þar um: Mývatns horsku hetjurnar
Frá útilegumönnum: Eyvindarkofaver, Halla og Eyvindur
Spurt um útilegumenn. Heimildarmaður heyrði talað um mann sem kom heim á bæ í Mýrdalnum en enginn kannaðist við þennan mann.
Um fjárrekstur þeirra bræðra Eyjólfs og Runólfs, en þeir kváðust hafa komist í kast við útilegumenn
Sigurður svarti var útilegumaður sem börn voru hrædd með
Saga af fólki sem lagðist út til fjalla; heimildir að frásögninni. Kærustupar tók sig upp úr byggðinni og reistu býli við Norðlingafljótið. Það var nokkuð úrræðaleysi hjá þeim varðandi búskap en þau náðu að þrauka veturinn.
Útilegumenn áttu að hafa náð stúlku frá Heiði til sín og haft nokkuð lengi hjá sér. Eitt sinn þegar þeir komu af veiðum og voru að hvíla sig, sneri stúlkan annarri buxnaskálminni við hjá þeim öllum og flúið síðan. Hún á að hafa sloppið naumlega til byggða
Í réttum á Suðurlandi var sauður sem var stærri en aðrir sauðir, svo kom ókunnugur maður á réttarvegginn og kvað: Mórauður með mikinn lagð; síðan hurfu maðurinn og sauðurinn til fjalls
Um fjárrekstur þeirra bræðra Eyjólfs og Runólfs, en þeir kváðust hafa komist í kast við útilegumenn
Prófastsdóttirin frá Flugumýri týndist á grasafjalli og lenti hjá útilegumönnum
Einsetukarl eða útileguþjófur í Loftshúsum við Geldingafell
Maður að nafni Frans lagðist út; Hellismenn
Útilegumenn voru fáir og heimildarmaður kann enga sögn af Sofndalahríslu.
Útilegumannasaga. Flökkumaður lagðist út á Hveravöllum; stal sér lambi, setti í heilu lagi í hver og sofnaði; svaf svo lengi að lambið sökk og aðeins lungun flutu upp; lifði á þeim fyrstu vikuna, aðra vikuna á munnvatni og þá þriðju á Guðs blessun.
Þremur systrum rænt á grasafjalli af útilegumanni, sú yngsta varð ráðskona hjá honum og eignaðist með honum barn, þegar hann dó komst hún til byggða og lét færa lík hans til kirkju, að hans eigin ósk