Spurt er hvort Jón Sælor hafi ort mikið en Sveinbjörn játar því og segir að hann hafi ort um allt sem fyrir kom. Hann segir einnig frá því þegar verkum hans var safnað saman til útgáfu eftir fráfall Jóns en útgefendur hættu við og brenndu safnið. Jafnframt er spurt út í hvernig Jón fékk nafnið Sælor og segir Sveinbjörn frá því ásamt nánari lýsingu af Jóni.
Árni segir af Guðrúnu Kaffipoka-Brandsdóttur, sem kom undir þegar faðir hennar fór í eldhúsið að sækja kaffipoka fyrir dansskemmtun.
Sagt frá Tryggva Björnssyni sem kallaður var tindur
Sagt frá mönnum úr eyjunum. Reynslan er sannleikur sagði maður að nafni Jón Repp. Eyjarnar voru eins og heimur út af fyrir sig og mennirnir dálítið einkennilegir. Þó voru þetta duglegir og mikilhæfir menn margir af þeim. Margir þeirra voru hagyrðingar.
Uppnefni í Flatey og sögur af þeim. Margir menn voru uppnefndir í Flatey. Til að mynda Bjarni hallinkjammi því að hann hallaði undir flatt. Hann var líka kallaður Bjarni suðurávið því að þá var hann að fara suður á eyju á Bókasafnið. Hann var einnig kallaður Bjarni Gaddur. Hann reifst við konu sína um hvort ætti að kalla þau gadd eða klingu. Eitt sinn kom...
Vísa um Jón bónda á Víkingsstöðum, sem var kallaður „einmitt beint“ og Árna í Hvammi, sem var ferjumaður á Grímsá: Einmitt beint fór um að tala
Þórður Grunnvíkingur var ekki talinn göldróttur. Hann var sonur Þórðar alþingismanns.
Árni í Ólafsgerði var kallaður sprengur því að hann sást aldrei hlaupa og vildi það ekki heldur. Þórarinn byrjaði vísu; Fyrst á brjóstum fögru... Kristín var með rytjulegt hár og vildi hún hafa þessa vísu um sig.
Um Eirík almáttuga Guðjónsson skósmið; vísa lögð honum í munn: Ekta brúttó brilljant
Um Jónas „Plausor“. Hann var mikill hagyrðingur. Halllgrímur Benediktsson gerði kvæði.
Uppnefni séra Stefáns í Holti
Viðurnefni manna, t.d. Sigurjón gonti.