Um álagablett á Þórbergsstöðum. Einnig um Einar Pálsson og blettinn
Þokan var kóngsdóttir í álögum
Spurt um álagabletti og votamýri á Blesastöðum. Heimildarmenn kannast ekki við slíkt.
Sögn um álagablett að Uppsölum í Álftafirði
Álagablettur í Steinsholti í Gnúpverjahrepp: Guðrún nokkur, gömul kona og frænka sagnakonunnar, sagði henni frá álagabletti þar sem mátti ekki slá því mátti eiga von á því að skepna dræpist
Í Norður-Hvammi í Mýrdal var brekka sem ekki mátti slá, það var gert og af hlaust fótbrot sláttumanns
Engir álagablettir á Fossi eða í Hrútatungu
Álagabletturinn Karlsbali
Raskað við álagabletti í Hvallátrum á Breiðafirði
Álagablettir í Hvallátrum, Tröllhóll og hólmi í Látravatni
Sögn um Bása, álagablett í túninu á Þverá
Álagablettur á Stórólfshvoli. Í kálgarðinum var blettur sem að ekki mátti slá. Heimilisfólkið á bænum vissi þetta ekki og þau slógu hann. Það kom kartöflusýking í garðinn og uppskeran var ónýt í tvö ár á eftir.
Álagablettur var í túninu á Svarthamri. Þar mátti ekki slá. Þar var steinn og fallegur blettur. Heimildarmaður veit ekki til þess að hann hafi verið sleginn. Álög voru líka uppi í hlíðinni. Gamall maður kom eitt sinn með mikla hríslu úr hlíðinni. Nokkru á eftir drapst kýrin og var það sett í sambandi við að hann hafi tekið hrísluna.
Álagablettur á Grænhól, Barðaströnd. Bakki var fyrir innan og ofan bæinn sem ekki mátti slá. Var einu sinni gert og missti maðurinn aðra kúna sína.
Sögn um álög á Hjallkárseyri
Álagablettur í landi Hvamms í Laxárdal: Kerlingarmýri sem ekki mátti slá
Um álagabletti, Lindarbali, annars lítið
Álagablettir, Kastalinn í Hlíð