Spurt um kraftaskáld, engin svör
Maður á ferð yfir Holtavörðuheiði mætti öðrum manni, heilsaði og tók ofan, en hinn ansaði ekki; sá fyrri sagði þá: „Fyrst þú vilt ei veita ans …“ komst þá hinn ekkert áfram fyrir púkum og árum sem tóku ofan
Um kraftaskáld og önnur skáld á Vestfjörðum. Vagn var ekki kraftaskáld. Þarna var ekkert skáld til. Heimildarmaður heyrði getið um Þórð.
Guðrún Úlfsdóttir skáldkona var talin ákvæðaskáld. Hún vildi ekki beita því og eitt sinn gaf hún þá skýringu fyrir því að hún ætti fyrir sál að sjá
Spurt um ákvæðaskáld, lítið um svör; minnst á Arnarfjörð
Reynistaðabræður: Eldri bróðirinn hittir prest í smiðju og segir: Tel ég þetta tvíllaust stál / tólin prests eru komin á ról; prestur botnar: Ýli þín af sulti sál / sólarlaus fyrir næstu jól; varð þetta að áhrínsorðum
Um Þormóð kraftaskáld í Gvendareyjum. Hann orti vísu þegar hann bjó í eyjunum. Kona hans átti barn en hann komst ekki í land. Hann var ekki með neitt, hvorki ljós né mat. Hann fór með vísu og um morguninn hafði rekið sel í fjöruna þannig að hann fékk allt sem hann þurfti. Annað sinn þurfti hann að komast til lands og þá orti hann vísu. Vísan hans: Kristur...
Spurt um kraftaskáld og frásögn um föður heimildarmanns og vísa eftir hann: Sú er einlæg ósk frá mér
Áhrínisorð í lausaræðu virðast virðast fátíðari en ákvæðin. Þó mun varið hafa nokkuð til af þessu en farið er það að úreldast með trúnni og hjátrúnni. Náskylt þessu er það þegar einn lét eftir hlut er hann lét annan fá og það leiðir af því að eiganda heppnast hann eigi. Það er einbeittur vilji, sterk trú og kraftgóð orð fylgjast að hefir það mjög þótt á...
Um hagyrðinga á Húsavík: Helgi Flóventsson og Baldvin Jónatansson; Árni læðist uppstrokinn; Árni fullur er með gríni; Árni ginnir auðarrein; um ákvæðaskáld
Fátækum manni, sumir segja Sigurði Breiðfjörð, var neitað um lán í Ólafsvík, á heimleið mætir hann gárunga sem gerir grín að honum. Þegar þeir hittast næst sagði sá fátæki: „Fyrir seinast svörin þín …“
Gömul kona arfleiddi systurson sinn að öllum sínum eignum eftir sinn dag með því skilyrði að hann héti því við móttöku arfsins að geyma lykil jafnan á sér, sem gekk að grænmálaðri kistu, og nota hann ekki né hreyfa við kistunni fyrr en tíu ár væru liðinn frá dauða hennar. Frændinn varð glaður því ekki átti hann von á að fá fyrirhafnarlaust hús með...
Helga og Halldóra vinnukona hennar voru að raka af þúfum sem voru umkringdar djúpum pyttum, Kattaraugum. Helgu þótti maður sem átti að bera ofan af vera of hægur og orti: Þér ég svara þori frí. Vísan varð að áhrínsorðum og hann fór á kaf ofan í dýin.
Sigurður Breiðfjörð var kraftaskáld
Ákvæðavísur Hallgríms Péturssonar. Heimildarmaður lærði þessar vísur þegar hún var barn.
Hallgrímur Péturson kom á bæ eftir að hann varð holdsveikur og bað um að gefa sér að drekka, stúlkan fór með vísu: Illúðlegur undir brún …; Hallgrímur tók í hönd henni og sagði: „Held ég nú í hendina á þér …“
Margrét ákvæðaskáld í Vestmannaeyjum og vísur eftir hana: Heyrðu djöfull mitt á mál; Heyrðu nú til mín skrattaskarn; Hér hef ég fargað hugarins kröftum