Myndir Sveinunga. Hann var mikill málari. Heimildarmaður hefur séð eina mynd eftir hann en það er altaristaflan á Djúpavogi.
Um hringinn sem var í kirkjuhurðinni í Selárdal
Viðbót við söguna um gullkistuna sem grafin var við Kirkjuhól: Kistuhringurinn var gefinn kirkjunni á Staðarstað, en presturinn þar gaf hann áfram enskum fræðimanni sem heimsótti staðinn.
Skorrastaðakirkja fauk. Heimildarmaður veit ekki afhverju hún fauk. Ortur var bragur um þennan atburð; Kirkjan er fokin. Heimildarmaður kann hann þó ekki allan. Þetta var vísa úr leikriti.
Kristján Guðbrandsson byggði Snóksdalskirkju. Stórbýli var í Snóksdal um 60 manna bær.
Framlag til Grenjaðarstaðakirkju
Bænhús á Syngjandanum í Vík; trú á Syngjanda og bletti í Norður-Vík
Sögn um bænhús á Rauðalæk
Gamli predikunarstóllinn á Reyni og örlög hans, hann var kominn frá Landakirkju, en þangað átti hann að vera kominn úr dómkirkjunni í Hróarskeldu
Sagt frá skrifum Kristleifs á Kroppi um druslur. Mikil virðing var borin fyrir öllu kirkjulegu, en hafði fólk samt gaman af því að semja um veraldleg efni og syngja undir sálmalögum og var slíkt kallað druslur.