Vinnumaður á Kleifum í Gilsfirði var kallaður Kleifa-Jón og varð úti. Strákar nokkrir rákust á líkamsleifar hans og fóru að grínast með líkið og settu neftóbak í nefið á því og síðan var hann kallaður Svartnasi.
Draugurinn Tungubrestur var kenndur við Kverkártungu. Hann var mjög meinlaus seinni árin. Hann fylgdi jörðinni og gerði ávallt vart við sig á undan Kverkártungumönnum. Tungubrestur hætti svo alveg að láta til sín taka eftir að jörðin fór í eyði. Á undan ábúendum bæjarins heyrðust oft brestir og líkt og vatn læki úr mikilli hæð. Ekki eru allir sammála um...
Breiðhörðungur og saga um hann höfð eftir Guðríði Einarsdóttur á Dynjanda
Rabb m.a. um Þorgeirsbola og fleiri drauga
Draugarnir Dalli og Stígvélabrokkur: sagt frá hjónum sem höfðu þá báða
Minnst á Þorgeirsbola og Hleiðargarðsskottu, en heimildarmaður vildi ekkert af þeim vita.
Skálastúfur gerði aldrei neitt af sér, hann var sjómaður sem hafði drukknað og rekið upp á Skálum, var með stígvél á öðrum fætinum og þess vegna haltur
Myndin af Seljanes-Móra. Sjá blöðin Morgun og Dagrenningu: frásögn Helga af aðstæðum við myndatökuna af Móra. Draumur Helga Gunnlaugssonar fyrir næsta vetri.
Minnst á Reykjafjarðarmóra eða Seljanesmóra, vísað í prentaðar sögur. Móri á að hafa drepið búfé og truflað geðsmuni fólks. Margir trúðu að Móri væri fylgifiskur á undan ættbálkum
Frá Skála-Brandi: upphaf draugsa; um Antoníus sem hann fylgdi; kynni heimildarmanns af Skála-Brandi
Þorgeirsboli átti að fylgja afa heimildarmanns
Mela-Manga villir um fyrir mönnum frá Skarðsmelum og vestur að Kúðafljóti, hún reynir að koma mönnum í fljótið. Heimildarmaður varð aldrei var við hana. Sagt að hún hafi átt upptök sín í kirkjugarðinum á Skarði.
Draugar í Reykdælahrepp; getið um Skútustaðakussu og Þorgeirsbola