Nefndir Eiríkur í Bót, Snorri hómópati í Dagverðarnesi og Hallur á Rangá. Gerð var þessi vísa um Snorra. Snorri á borðið breytti
Læknirinn kenndi heimildarmanni að búa um sárið og fór hún á hverjum degi til að aðstoða konuna. Að lokum gréri hún en læknirinn átti bágt með því að trúa því. Gömul kona ein meiddi sig mikið í hnénu og læknirinn vildi að hún færi í nudd. Hún kom til heimildarmanns og nuddaði hún hana.
Tað var þurrkað úti til eldiviðar. Tveir unglingar voru að hressa upp í taðinu. Þá koma ferðafólk að Þóroddsstöðum í Hrútafirði með nýfætt barn og eru í hálfan mánuð. Um nóttina gáfu þau barninu að drekka. Svo fóru þau að hátta og unglingarnir kíktu í gegnum rifurnar. Þá sáu þau manninn sjúga konuna, en barnið torgaði ekki allri móðurmjólkinni og maðurinn...
Eitt sinn var heimildarmaður á togara. Einn maður var veikur og ort var um hann; Mörg eru manna meinin ljót. Sá sem orti pissaði á flösku og gaf hinum sem áburð og hann bar þetta á sig og læknaðist fljótlega.
Gigtaráburður var ekki búinn til úr grösum heldur spirítus, terpentínu og fleiru. Afkomendur Þórunnar héldu áfram að vera í grasalækningum. Heimildarmanni var kennt að nudda af nuddkonu.Talað var um að heimildarmaður væri einn besti nuddari. Uppskurður kostaði 100 krónur og spítalalega kostaði líka 100 krónur.
Trú á vatni úr lind á Hafsteinsnesi í Þorskafirði
Læknar. Hannes Finnbogason var góður læknir. Heimildarmaður er veikur.
Lækning fótasára. Heimildarmaður fékk læknirinn til að koma með sér til aðstoðar. Hann kenndi heimildarmanni að búa um sárið og fór hún á hverjum degi til að aðstoða konuna. Að lokum gréri hún en læknirinn átti bágt með því að trúa því.
Frásögn um Jón á Hellu, alþýðulækni
Sigurlaug lýsir því hvernig frumkvöðull smáskammtalækninganna prófaði sig áfram með gerð remedíanna; hann tók inn ýmis eiturefni til þess að sjá hvernig einkenni heilbrigður maður fengi; þannig gat hann séð hvernig væri hægt að búa til rétta remedíu en hann bjó til meira en þúsund remedíur.
Um lækningar Halldórs í Æðey
Krabbamein; Sá veikleiki etur holdið í kringum sig burtu. Rak lambsgall og smyr með því volgu þann lim. Tak þess manns allan eigin saur, legg í léreft og bind þar við. Sullavatnssótt; Drekk þitt eigið þvag. Ger þér bað úr sjó eða baða þig oft í sjó. Gula; Sóley, saman við mjólk undan geldmjólkri kú og himinnjólarót soðið, og það svo drukkið er gott við...
Sigríður segir frá handlagni föður síns og lækningum; segir sögu af einu skipti þegar hann gerði að áverkum vinnumanns.
Frá Litla Kletti rann alltaf vatn eins og það væri hellt úr flöskustút. Það var talið vera lækningavatn. Rauðamelskelda var talin vera læknismeðal á meðan hún var óskemmd. En hún var skemmd með því að setja kalkkant á hana.
Saga Þórunnar af lækningamætti Ólafar grasa. Tveir læknar sem að báðir hétu Guðmundur voru með stofu saman í Reykjavík. Til þeirra kom maður sem að hafði fingurmein og sögðu þeir að það yrði að taka fingurinn. Hann fór til Ólafar en hún setti á þetta grös og annað og kom hann til hennar í 3 daga. Sendi hún hann þá til læknanna og sáu þeir þá að hún hafði...
Frásögn um Guðmund Scheving lækni
Lungnabólga og miltisþroti; Sá maður sem svo er veikur hefir iðulega velgju, getur þó ei upp kastað, einnig öngvit og lítilleik, þar með einnig hósta og mæði því þá þykknar froðan í lungunum. Við því er gott: hvannarótarvatn, drukkið í mysu eða víni á fastandi maga oftlega, eða hert járn í vatni; drekki sá sjúki það í 9 morgna í samt fastandi....
Faðir heimildarmanns hjálpaði veiku og slösuðu fólki, en ekki síður læknaði hann skepnur; t.d. limaði hann folald frá hryssum sem gátu ekki kastað; hreinsaði og skar í sár sem óhreinindi voru í
Frásögn af Jónasi hómópata, afa Jónasar frá Hrafnagili
Sögur af Eiríki í Hoffelli og Völku og af Guðmundi bónda í Hoffelli. Guðmundur var góður og gildur maður. Hann var fyrsti kaupfélagsstjórinn í austur-Skaftafellssýslu. Guðmundur sonur Eiríks í Hoffelli var einnig góður maður og hann var læknir. Tók blóð og var góður í þessu starfi.