Einu sinni slitnaði nautaband hjá kölska, Sæmundur skipaði honum að sauma það aftur saman. Kölski tók mjaðmarbein úr hesti og dró griðungssin í augað á beininu og saumaði svo og hafði beinið fyrir nál en sinina fyrir nálþráð. Kölski segist nú sauma svona stórt og sterkt. Sæmundur hló að honum, tók bandið og sleit það um sauminn.
Sagan af Kolbeini og kölska og vísan sem Kolbeinn kvað kölska í kútinn með: Líttu í þessa egg egg
Kölski spurði guð hvort hann mætti eiga það sem menn legðu af sér og guð svaraði að hann mætti eiga það sem menn litu ekki á áður en þeir færu
Saga af manni sem Kölski brýndi hjá. Mátti maðurinn ekki brýna ljáinn eftir þetta, því þá missti hann bitið; heimildarmaður las söguna, líklega í almanaki
Sigtryggur Jónsson frá Hrappsstöðum segir sögu af Bjarna í Ásgarði. Þegar Jón Helgason biskup kemur að Ásgarði þúar Bjarni hann; spyr biskup þá: „Hvenær urðum við dús?“ en því svarar Bjarni: „Það veit ég ekkert um, ég er dús við alla nema djöfulinn.“
Sögn af tveimur konum sem deildu og voru illorðar, að lokum sótti kölski aðra þeirra
Sagt frá manni sem flutti andskotann með sér í skut
Frásögn af því er tveir tígulkóngar komu í spilið þegar verið var að spila á nýársnótt á Kálfafelli; Guðbjörg nokkur brjálaðist
Saga frá Eiríksstöðum á Jökuldal: Spilafíkn spillir heimilisandanum; á jólanótt eru komnir tveir tígulkóngar; ljósið slokknar og einhver ófreskja sést; guðsorð bjargar; um söguna