62 datasets found
Place of Narration: Fljótsdalsheiði Fljótsdalshérað Jökuldalur Kollsstaðir
Skinnbeðja heitir tjörn skammt frá Kollsstöðum á Völlum. Því var trúað að í henni væri nykur sem stundum væri sem maður og stundum sem hestur. Eitt sinn voru skinnsængur Kollastaðabóndans þvegnar í tjörninni og breiddar þar til þerris. Þegar átti að taka þær, voru þær einni fleiri og kom þá hvirfilvindur og feykti henni í tjörnina. Talið var að nykurinn...
Á Kollsstöðum á Völlum bjó einu sinni ríkur bóndi, sem átti þrettán skinnsængur. Allstór tjörn og djúp er þar skammt framan við túnið. Á henni lá sú trú, að vantabúar ættu þar heima, og væru þeir líkir mönnum. Einn góðan veðurdag voru allar skinnsængurnar á Kollsstöðum breiddar til þerris. Um kvöldið átti að taka þær inn, en þá voru þær fjórtán. Enginn...
Vatnabúar í Skinnbeðju
Börn Kollstaðabóndans breiddu eitt sinn sængurnar við tjörnina. Eitt sinn er allir voru í kirkju, áttu börnin að sækja sængurnar og bera heim. Sáu þau þá gráan sterklegan hest við tjörnina. Hugðust þau nota hestinn til að bera sængurnar, en hesturinn var staður. Segir þá eitt barnið: Hann nennir ekki. En þá brá svo við að hesturinn tók undir sig stökk í...
Maður nokkur sá ókunnugan mann klæddan leðuról um mitti ganga að rúmi og rétta höndina upp fyrir sig, vissi maðurinn hvaða fylgja þetta væri, stuttu seinna koma maður að bænum sem átti fylgjuna.
Guðbrandur og Jón; H
Bóndi einn saknaði eitt sinn kvígu sinnar, fannst kvígan og var búið að troða henni ofan í pytt og var sagt að hvert bein hefði verið brotið í henni, en tvær stúlkur höfðu komið við á bænum og var fylgdi Þorgeirsboli ætt þeirra.
Maður nokkur var þekktur fyrir góða smíðakunnáttu, smíðaði hann margar stofur, eftir dauða hans sáu margir svip hans í þeim stofum sem hann hafði byggt.
Á bæ einum var þröng mikil og urðu vinnumenn að sofa í kirkjunni en þoldu ekki við nema fram að nýári. Einn hughraustur maður sagðist ekki hræddur og bauðst til að vera þar einn. Í kirkjunni dreymdi hann að hurðin opnaðist og hann heyrði gengið um en sá engan nema karl einn sem sagði þetta vera dauðasvipi en hann gæti ekki séð þá því hann hefði lesið úr...
Nokkur örnefni er kennd við Eyvind bróður Sáms að Leikskálum. Upp af Jökuldal er Eyvindarfjöll, Eyvindará og Eyvindartorfur. Þar féll Eyvindur fyrir Hrafnkeli Freysgoða og heitir Eyvindarstaðatorfa þar sem hann og menn hans voru heygðir. Ekki eru menn vissir um hvar torfan er en gamlir menn mundu það lengi vel. Eitt sinn var smali þar á ferð og sá bein og...
Maður fer að byggja á landi án þess að fá leyfi frá eiganda landsins, var ráðist á manninn er hann var einn á ferð, sá er réðst á hann var íklæddur mórauðum fötum, áttust þeir lengi við og gat maðurinn loksins slitið sig lausan. Daginn eftir hitti hann eiganda landsins en honum fylgdi Móri og álitu menn að Móri hefði ráðist á manninn um nóttina.
Hér segir frá ósættum Gauks er bjó á Gauksstöðum og Brands sterka. Gaukur banaði Brandi og í kjölfar þess urðu vígaferli er leiddu til falls Gauks og fleiri manna.
Hér er sagt frá deilum þeirra Hákons og Skjöldólfs á annan hátt en í sögninni Frá Hákoni og Skjöldólfi (sjá nr. 6397).
Hér segir frá fornmönnum sem bjuggu á Vopnafirði og á Jökuldal og nágrenni. Mörg örnefni eru tengd þeim. Sagt er frá deilum milli Hákons sem nam land í Jökuldal vestan Jökulsár og Skjöldólfi Vémundarsyni sem nam land í Jökuldal fyrir austan Jökulsá. Deilurnar snérust um það að Hákoni þótti Skjöldólfur seilast inn á sitt landssvæði. Hákon skoraði Skjöldólf...
Konu dreymdi að vinkona sín, sem þá var látin, kæmi til hennar. Hún var björt sem engill og sagðist þekkja líf í öðrum heimi. Fleiri sagnir um framliðna sem vitja lifenda.
Frá hinum framliðnu
Bessi sagði oft fyrir um gestakomur og mannslát en hann var ýkinn svo menn trúðu honum ekki alltaf. Eitt sinn sá Bessi mann vera að pota í kirkjugarðinum og sagði að bráðlega mundi utansveitarmaður verða jarðaður þar. Það rættist daginn eftir og var maðurinn grafinn þar sem svipurinn hafði verið að pota.
Í sýslumannstíð Jóns Þorlákssonar í Múlasýslu, bjó að Langhúsum fátækur maður er Gísli hét. Var hann álitinn drengur góður og þó blendinn og rummungsþjófur, en stal jafnan af efnamönnum og gaf fátækum. Eru í þættinum sagðar margar sögur af snilli Gísla við stela ýmsu, smáu sem stóru, fyrir framan nefið á mönnum. Gat hann náð allt frá hóffjöðrum til heilla...
Halldór á Högnastöðum Árnason var ættaður af Fljótsdalshéraði,kominn í karllegg af Hrafni lögmanni í Hlíð sem þótti á sinni tíð mikilmenni.
1. Þáttur af Halldóri Árnasyni á Högnastöðum: Ætt Halldórs
Gáll eða hafgall nefnist skýstrókur sem stendur lóðbeinn úr hafi, stundum marglitur og stundum hafgrænn. Þegar hann sést, er talin von á miklum rigningum. Guðný sú er sögu þessa segir, hefur tvívegis orðið vitni að svona hafgál og fylgdi honum úrfelli í bæði skiptin. Því skýrari sem hann er þeim mun meira úrfellið.
Heimildarmaður telur nær öruggt að telpan Helga hafi greint rétt að beinin í tjörninni væru af manni. Hvarf Nikulásar mun hafa verið kært á sínum tíma, en sýslumaður ekki talið efni til að dómtaka málið, ekki séð að orðrómurinn um sekt Magnúsar hefði við neitt að styðjast. Heimildarmaður segist líka hvergi hafa rekist á að illt orð færi af Magnúsi og...
Hvarf Nikulásar á Gíslastöðum. 7. Aldurtili Nikulásar
Nikulás á Gíslastöðum var sendur að haustlagi með fjárrekstur með Magnúsi í Kollsstaðagerði yfir hálsinn í Dalhús. Nikulás var stríðinn og hafði strítt Magnúsi allmikið áður en þeir fóru og Magnús orðið reiður. Þegar Nikulás skilaði sér ekki heim daginn eftir var spurst fyrir um hann hjá Magnúsi, sem sagði hvar hann skildi við hann. Var svo hafin leit,...
Hvarf Nikulásar á Gíslastöðum. 3. Enn frá hvarfi Nikulásar
Víðáttumikil slétta gengur þvert yfir Fljótdalshérað út við Héraðsflóann og heitir hún Eyjar. Þar á svokallaðri Norðurey er hamar sem kallaður er Hnitbjörg og samnefndur bær þar hjá. Sagt er að áður hafi hann kallast Hnykkbjörg. Sagt er að Þorsteinn torfi sem nam Jökulsárhlíð alla upp að Fossvelli, hafi farið ríðandi yfir Eyjarnar í landkönnun. Þá mun...