Organizations
Keywords

There are no Keywords that match this search

Danish Keywords

There are no Danish Keywords that match this search

Dutch Keywords

There are no Dutch Keywords that match this search

German Keywords

There are no German Keywords that match this search

Place Mentioned

There are no Place Mentioned that match this search

Place of Narration
Show More Place of Narration
Narrator Gender

There are no Narrator Gender that match this search

close
27 datasets found
Organizations: Sagnagrunnur Place of Narration: Seyðisfjörður
Sunnlendingur einn Guðmundur Jónsson að nafni, skynsamur maður og gætinn, var eitt sinn við fiskveiðar. Sá hann þá skepnu eina fylgja bátnum. Hún var á stærð við mannsfingur og í mannsmynd, nema hvað höfuðið var fagurrautt. Eftir nokkra stund hvarf þetta.
Árið 1902 á góu fóru nokkrir Héraðsmenn til Seyðisfjarðar að sækja vörur því sú frétt hafði borist út að nýkomið væri skip til Seyðisfjarðar, hlaðið nauðsynjavörum. Gekk ferðin yfir Fjarðarheiði niður á Seyðisfjörð vel. Gistu þeir eina nótt á Seyðisfirði. Daginn eftir voru menn ekki sammála um hvort leggja skyldi á heiðinna eður ei en svo varð þó úr....
Stefán Stefánsson bjó á Reykjum í Mjóafirði eystra. Hann fór eitt sinn sjóveg úr Mjóafirði norður til Seyðisfjarðar. Fór Stefán ásamt karli og konu af stað en á leiðinni hvolfdi bátnum og bæði konan og maðurinn drukknuðu. Stefán gat þó haldið sér í kjölinn á bátnum. Sagði hann þetta hafa verið hræðilegustu nótt sem hann hefði lifað, sá hann ofsóknir og...
Hrakningur Stefáns frá Reykjum
Hér er sagt frá þeim fornmönnum sem byggðu Seyðisfjörð og þeim örnefnum sem minna á búsetu þeirra þar og bardögum þeim sem þeir áttu við nágranna sína.
Oft heyrast smellir í viði í húsum. Í þjóðtrúnni var það oft tekið sem feigðarboð ef slík hljóð heyrðust. Sagt frá manni sem heyrir slíka smelli í húsum og mannslátum sem verða í húsinu.
Einar hét maður Jónsson er bjó í Odda á Fjarðaröldu á 19du öld, hann var kallaður Oddakútur. Þau hjón sögðu að veðurfylgjur berðu jafnan í kofaþekjuna þeim megin sem veðrið kom frá. Bæði sáu þau manna og veðurfylgjur og jólasveina meðan þeirra tími var. Stundum fóru fylgjurnar undir baðstofuloftið og ónáðuðu kúna. Kölluðu þau hjón þá : „Í sekkinn, í...
Sagan segir frá barnakennara nokkrum sem leggur mikla vantrú í alskyns yfirnáttúruleg fyrirbæri. En svo lendir hann í því að heyra þrusk á húsþakinu heima hjá sér og skvamp í fötu og gól. Kennarinn snarar sér út, þá heyrist mikið gól en engin slóð sést í mjöllinni. Var hann viss um að þetta væri með öllu óskiljanlegt. Daginn eftir spyrst hann fyrir en...
Kjartan var skíðamaður mikill og æfði sig á skíðum í brekkunum upp af Eskifjarðarkaupstað. Varð hann mesti skíðamaður Austurlands á sínum tíma. Eitt sinn var Kartan að koma frá Seyðisfirði á skíðum og fór Jökulfönn. Stoppaði hann á suðurbrún jökulsins og renndi sér niður í hlaðið á Seli. Uppgötvaðist þá að hann hafði gleymt vettlingum sínum og staf upp á...
2. Þáttur af Kjartani í seli: Skíðaíþrótt Kjartans
Jón grái eignaðist ekkju í Geitavík eða Geitavíkurhjáleigu er Jón nokkur hafði átt. Hennar börn hétu Jón og Sunnefa, innan tvítugsaldurs. Árið 1739 varð Sunnefa ólétt í föðurgarði, hún kenndi Erlendi nokkrum á næsta bæ barnið og gekst hann við því með því skilyrði að hún ætti hann en það eigi getað orðið og afsagði hann þá að gangast við barninu. Hún...
Sagt frá manni, gáfuðum og efnilegum. Hann var hagmæltur og þótti draumspakur. Hann dreymdi vísur (sjá Vísur). Hann fór sínu fram og hélt fram hjá konu sinni. Hann fórst við smölun í klettum. Vin hans dreymdi hann kæmi til sín og færi með vísu (sjá Vísur).
Tveir menn fóru í kaupstað. Á heimleiðinni heyrði annar þeirra einkennileg köll og hestur hins vildi ekki úr sporunum. Þegar heim kom fréttu þeir að kona annars hafi dáið meðan þeir voru í burtu.
Sagt frá því að mikill umgangur og hundaýlfur hafi heyrst er maður lá banaleguna, sérstaklega síðustu nóttina sem hann lifði.
Hundaærsli í Vestdal
Seint á góu árið 1860 var Halldór á ferð af Seyðisfirði við þriðja mann. Lögðu þeir af stað í frostlausu og björtu veðri og fóru að óvilja Halldórs Jökulfönn. Þar hrepptu þeir afspyrnubyl. Neyddust þeir til að grafa sig í fönn uppi á jöklinum og dveljast þar í hálft fjórða dægur. Einn maðurinn varð úti, en Halldór kól svo á höndum og fótum að hann beið...
9. Þáttur af Halldóri Árnasyni á Högnastöðum: Halldór liggur úti og kelur
Steinn sem talið var að dvergar byggju í var nálægt prestssetrinu á Seyðisfirði. Þegar prestssetrið var flutt hinum megin við fjörðinn fluttu dvergarnir ásamt steininum yfir fjörðinn líka.
Héraðsmenn versluðu nær eingöngu við Seyðisfjörð áður fyrr. Þó var oft erfitt yfirferðar yfir Fjarðarheiði og leið varla sá vetur að ekki yrði einhver úti á Fjarðarheiði. Árið 1894 var Pétur Pétursson, vinnumaður hjá Jóni föður Þorsteins. Var hann sendur að vetrarlagi til Seyðisfjarðar til að selja rjúpur og var samferða manni að nafni Steindór. Þegar...
Hér er sagt frá fyrirboðum og draumum er varða skipsskaða.
Við þjóðveginn sem farinn er upp Vestdal frá Seyðisfirði er gilskora sem klífur sig gegnum klettahamar. Öðrum megin við gilskoruna er klettasnagi með gat í gegnum og kallast Ræningjagat en gilskoran Ræningjagjót. Sagt er að útlendir sjómenn hafi verið að ræna kindum þarna og elt smalann, en hann slapp í gegnum gatið og náðu ræningjarnir honum þá ekki.
Sumarið 1915 var Páll við lýsisbræðslu á Skálum á Langanesi frá því snemma í júlí og þangað til í fyrra hluta nóvembermánaðar. Þeir hættu að bræða í október en Páll beið eftir skipsferð til Reykjavíkur fram í nóvember. Bræðsluna rak Þorsteinn Jónsson á Seyðisfirði. Þeir voru venjulega 3 við bræðsluverkin, Páll, Kristinn og Jón, búsettir í Reykjavík....
Sögur Páls Jónssonar innheimtumanns: Skálastúfur
Það gerðist eitt sinn á Seyðisfirði að örn greip kött og flaug burt með hann. síðar komu þeir báðir dauðir niður aftur. Sami atburður gerðist í Breiðdal en þá drapst kötturinn en örninn lifði af.
Konu dreymdi hún hitti aldurhniginn mann sem sagði henni frá mannslíki. Allt í einu var hún stödd hjá líkinu og kannaðist óljóst við manninn. Heimilisfólkið þekkti manninn af lýsingum hennar um morguninn. Sá maður fannst síðar látinn á sama stað og í sömu stellingum og verið hafði í draumnum.
Spádraumar Ragnhildar Jónsdóttur
14103