37 datasets found
Place of Narration: Akureyri None: domestic animals; love affairs; upbringing; rivers; revards; accidents; food and drink; assistance
Heimildarmaður bjó á Akureyri ásamt fjölskyldu sinni. Einn sunnudagsmorgun kvartar Jakob sonur hans um hversu svefnfarir hans hefðu verið slæmar þar sem hann svaf á skrifstofu föður síns og sagði hann hafa verið miklir brestir í stólunum og nálykt bar að vitum hans oft um nóttina. Gekk hann út á bryggju seinna um daginn og sér þá menn vera að taka lík upp...
Óhugnanleg nótt
Oft var margt Norðmanna á götum Akureyrar undir lok 19.aldar. Stunduðu þeir síldveiðar. Kom þá oft fyrir þegar ekki viðraði vel til sjóferðar að þeir æddu um drukknir og voru slagsmál tíð. Gengu þeir oft á milli þeirra verslana er seldu brennivín. Margir karlar úr bænum leituðust eftir vinskap þeirra þegar þeir voru drukknir.Einhverju sinni eftir lokun...
Óspektir Norðmanna á Akureyri 1. Götubardagi
Guðlaugu Sveinsdóttur dreymdi eitt sinn mikinn bjarma er náði austur yfir Vaðlaheiði, austur á Seyðisfjörð og yfir allt Seyðisfjarðarhérað. Fannst henni bjarminn stafa af eldi sem hún sá þó hvergi. Um tveimur dögum síðar gaus upp eldur á Oddeyri og varð bjarminn af bálinu mjög mikill og sást víða.
Bruninn á Akureyri 1906
Eitt sinn að vetrarlagi var kaupmannshjónunum á Akureyri send sending, vann hún kaupmanni ekki tjón en konunni lá við sturlun. Sendi kaupmaður þá eftir Galdra-Geira, fór hann til kaupmannshjónanna og hafði Guðrúnu dóttur sína með sér. Dvöldu þau mæðgin mánaðartíma ynnra, hresstist kaupmannsfrúin óðum og eftir mánuðinn hafði hún náð sér að fullu. Guðrún...
GALDRAMENN. Þáttur af Þorgeiri Stefánssyni 2. Þorgeir kaupmannskonan
Kona ein á Akureyri hét Katrín og var gift norskum sjómanni. Hún var gædd miklum dularhæfileikum. Segir maður hennar dag einn að faðir sinn sé á norsku skipi sem lá á Akureyrarhöfn og ætlaði hann að heimsækja þau. Þá bar sterka nálykt fyrir vit hennar. Þegar tengdafaðir hennar kom daginn eftir finnst henni ásjóna hans vera eins og dauðs manns ásjóna og...
Maður hét Árni og bjó á Hálsi í Eyjafirði. Hann var mikill kraftamaður og var vinur Árna á Æsustöðum. Eitt sinn var hann staddur í verslun og var kaupmaður að mæla fyrir hann korn. Árna fannst hann mæla ódrjúglega og greip í taumana. Reiddist búðarmaður og ætlaði að berja hann, en þá þreif Árni í hann og hóf hann á loft þar til kaupmaðurinn bað sér vægðar.
2. Þáttur af Árna Jónssyni: Frá Árna á Hálsi
Þórhallur Björnsson var ásamt öðrum að gera við þilskip, er hét Helga. Fór hann niður í hásetaklefa að ná í trétappa og sá hann þar standa stúlku á bláum kjól. Hélt hann að þetta væri einhver krakki að færa einhverjum smiðanna kaffi. Var honum síðan sagt að þetta hefði verið skipsdraugurinn því stúlka hefði orðið undir skipinu þegar það var sett fram í...
Sumarið 1897 flutti Jón kaupmaður Norðmann til Akureyrar. Hann átti skip er Jón hét og kom það norður. Á skipinu var maður er hét Jón Hafliðason, var sagt að honum fylgdi draugur meinlaus og hafðist hann við í skipinu. Svo bar til haustið 1902, þegar skipinu var lagt upp, að Jón Hafliðason segir: „Nú verð ég ekki lengur á þessu skipi og þykir mér líklegt...
Haustið 1906 var Þorsteinn gestkomandi á Akureyri í nokkra daga. Dvaldist hann hjá frú Jóhönnu Jónasdóttur. Einn morguninn sagði frú Jóhanna að henni hafi sýnst eldur leika um gólf herbergis síns. Hafði hún kveikt ljós og hvarf þá eldurinn. Var þetta fyrirboði þess að það kviknaði í húsi skammt frá húsinu hennar og barst eldurinn meðal annars í hennar hús...
Furðusýn
Jón á Þórustöðum var háseti á bát sem réri frá Hrísey, en landaði á Akureyri. Eitt sinn er þeir hafa fiskað mikið, ákveða þeir að halda kyrru fyrir og fara heldur daginn eftir í land. Dreymir Jón um nóttina að kallað er á alla hásetana með nafni nema hann. Fer svo daginn eftir að báturinn ferst og öll áhöfnin með nema Jón.
Ari Jónsson gisti eitt sinn í húsi nokkru á Akureyri. Þar var í húsinu maður nokkur, er sat á rúmi sínu og reif þorskhaus. Maður þessi bað Ara að kveða nú um sig vísu. Ari færðist undan því en loksins segir Ari:Liprum hafna listum kann,líkur hrafni og svínum... Þorsteinn Þorsteinsson og Þorgrímur nokkur kváðust á þannig: Þorsteinn kvað: Þú ert latur...
Sagnir Árna Jóhannessonar: Smælki. Handrit Hannesar Jónassonar bóksala, Siglu...
Sex Árskógsstrendingar fóru eitt sinn á Akureyri á báti. Gekk á með éljum og tekið var að skyggja, sjá þau þá gufuskip á innleið sem hvarf inn í hríðina stuttu síðar. Síðar fréttu þau að ekkert skip hafði verið þarna á ferð. En stuttu seinna fórst gufuskipið Tryggvi konungur austur af Langanesi.
Stefán sýslumann dreymdi Jörgen Havstein amtmann er var nýlátinn og Skaftasen ríða í skýjunum. Þeir voru aldavinir. Varð ekki langt á milli þeirra því Skaftasen dó sex dögum eftir að Jörgen dó.
Draumur Stefáns sýslumanns
Sumarið 1892 var haldinn kjörfundur á Akureyri. Átti að kjósa tvo menn til alþingis. Fyrst buðu frambjóðendur sig fram í upphafi kjörfundar, héldu þeir síðan framboðsræður sínar í stafrófsröð en þar á eftir var kjósendum leyft að leggja fyrir þá fyrirspurnir. Menn að nafni Klemenz Jónsson og Jón bóndi í Múla reyndust réttkjörnir þingmenn.
Kjörfundur á Akureyri árið 1892
Jón var eitt sinn í verslunarferð og fannst eins og hjá sér stæði einhver vera sem héldi á hvössu spjóti og ræki það í löppina á honum. Þetta sat í honum og hann ákvað að kaupa plástur í kaupstaðnum. Á heimleiðinni lenti hann í því að fá skaflaskeifu í ristina þannig að stór æð fór í sundur og blæddi mikið. Kom því sér vel að hafa plásturinn meðferðis. En...
Einhverju sinni eftir fráfærur vantaði margar kvíær á Æsustöðum og Árni gat sagt smalamanni sínum nákvæmlega hvar þær væri að finna. Eitt vor var mikill bjargarskortur vegna siglingaleysis. Bjó Árni sig skyndilega til Akureyrar og undruðust þetta margir því enga matvöru var að fá í kaupstaðnum. Kom hann samt fullklyfjaður af síld heim úr kaupstaðnum. Var...
6. Þáttur af Árna Jónssyni: Ófreskigáfa Árna
Eitt sinn þurfti Gísli að bregða sér inn á Akureyri til viðarkaupa. Fór hann á hákarlaskipi. Var nýkomið kaupskip í höfnina sem Herta hét. Þegar hann ásamt öðrum mönnum var um borð í Hertu, þá sáu þeir allstóra skonnortu hjá Oddeyrartanga og stefndi hún á Hallandsbjörgin. Síðan hvarf skipið. Var talið að skonnorta þessi hafi verið hulduskip enda hafði oft...
Rétt fyrir jól 1882 héldu nokkrir menn í kaupstað inn á Akureyrir og til baka. Á leiðinni til baka verður stórhríð og komast þeir ekki af stað aftur fyrr en á Þorláksmessu. Einn mannanna, Hálfdán, fer fyrir mönnunum og er með selabyssu á öxlinni. Þegar þeir koma niður í fjöru eina verður Hálfdán var við skepnu, svarta á stærð við stóran hund með græn...
Jón spáði fyrir um að Snorri Jónsson myndi vera framamaður þegar hann yrði eldri. Það rættist því hann varð mikill athafnamaður, smiður og kaupmaður.
4. Sagnir um Jón Halldórsson á Syðra-Hvarfi: Spá Jóns um Snorra Jónsson
Einu sinni voru rík hjón í Múlasýslu. Þau spöruðu allt sem þau gátu og gengu illa til fara. Einu sinni komu þau í kaupstað og tók karlinn þá út hátt í sjóvettling af peningum. Þá sagði kerling: „Hvernig eigum við að fara með börnin heima?“ Karlinn sagðist ekki vita það, hann hefði engin ráð til þess. Hann lét hana samt hafa þrjá eða fjóra skildinga til að...